Nýtt Tímarit HR komið út
Tímarit Háskólans í Reykjavík er komið út í áttunda sinn og inniheldur að vanda fjölbreyttar greinar og viðtöl um rannsóknir og önnur viðfangefni nemenda og kennara við HR, í lífi og starfi.
Meðal efnis í tímaritinu í ár eru viðtöl við fræðimenn HR um þróun á talgreini og söfnun málgagna á Jövu í samvinnu við Google, einstakan árangur Íslendinga í forvörnum gegn fíkniefnanotkun barna og unglinga, gervigreind, kosningafund hjá Donald Trump, Olympíuleikana í Ríó og margt fleira.
Ari Kristinn Jónsson skrifar um mikilvægi háskóla fyrir framþróun samfélagsins. Deildarforsetar fjögurra akademískra deilda háskólans skrifa um loftslagsmál, nýsköpun, stjórnarskrána og gagnagreiningu. Einnig er sagt frá fjölmörgum áhugaverðum viðfangsefnum nemenda svo sem kappaksturskeppni á Silverstone, „hökkun“ á insúlínpumpum, taekwondo, áhættugreiningu innan fyrirtækja og rannsókn á lagaumhverfi kynferðisbrota á Jamaíka.
Tímarit HR er sent til núverandi og fyrrverandi nemenda háskólans og til starfsmanna. Blaðinu er einnig dreift á kaffihús og í ýmis almannarými eins og bókasöfn, verslanamiðstöðvar, sundlaugar og á fleiri staði.