Upplýsingar fyrir nemendur

Stundaskrá

Sumarönn 2023


Haustönn 2023


Grunnnám í viðskiptadeild

  • BSc í hagfræði
  • BSc í viðskiptafræði
  • BSc í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein
  • BSc í viðskiptafræði með tölvunarfræði sem aukagrein

Dagatal 

  • Almanak HR – helstu dagsetningar skólaársins

Bókalistar

Vor 2023


Hafa samband

Nemendur eru hvattir til að hafa samband við verkefnastjóra ef þeir hafa fyrirspurn eða vilja bóka tíma.

Styrkir

Þeir nemendur í grunnnámi sem ná bestum árangri á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista deildarinnar og fá skólagjöld næstu annar felld niður.

Forsetastyrkur

Nemendur í meistaranámi í viðskiptafræði eiga möguleika á forsetastyrk. Forsetastyrkur felur í sér niðurfellingu hluta skólagjalda þannig að nemandi greiðir skólagjöld sem nema sömu upphæð og skólagjöld grunnnáms. 

Reglur

Mat á fyrra námi

Mat á fyrra námi er ekki framkvæmt fyrr en formleg umsókn um nám í HR hefur verið samþykkt og skólagjöldin hafa verið greidd. Þó er hægt að óska eftir lauslegu mati á fyrra námi sem er hvorki nákvæmt né bindandi. Umsókn skal send til verkefnastjóra námsbrautar. Umsóknareyðublað.

 Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn

  • Útfyllt umsóknareyðublað.
  • Staðfest afrit af einkunnum frá viðkomandi háskóla á íslensku og ensku.
  • Staðfest afrit af námskeiðslýsingum frá viðkomandi háskóla frá því ári sem námskeiðin voru tekin.

Reglur um mat á fyrra námi

  1. Hafi nemandi lokið námskeiðum á háskólastigi sem eru fyllilega sambærileg við þau námskeið sem í boði eru við HR, gefst honum kostur á að óska eftir því að fá námskeiðin metin. 
  2. Umsækjendur geta ekki átt von á því að námskeið sem tekin voru fyrir meira en 7 árum,  námskeið með lægri einkunn en 7,0 eða námskeið sem eru færri en 6 ECTS einingar fáist metin.  
  3. Mat á fyrra grunnnámi getur aldrei numið meiru en 84 ECTS. Mat á fyrra meistaranámi getur aldrei numið meiru en 30 ECTS. 
  4. Lokaverkefni/Lokaritgerð fæst ekki metið.
  5. Nemendur þurfa að skila inn skriflegri umsókn um mat á fyrra námi til deildarinnar. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað (hér fyrir ofan). Í umsókninni þarf að koma fram hvaða námskeið frá fyrra námi umsækjandi sækir um að fá metin og nöfn námskeiða sem eru sambærileg í náminu í HR. Til að umsókn verði tekin til greina þurfa eftirfarandi gögn að fylgja með:
    - Staðfest afrit af einkunnum frá viðkomandi háskóla, bæði á íslensku og ensku.
    - Námskeiðslýsingar frá viðkomandi háskóla frá því ári sem námskeiðin voru tekin.
  6. Beiðni um mat á fyrra námi skal senda til verkefnastjóra námsins sem leggur umsóknina fyrir námsstjórn. Eftir umfjöllun í námsstjórn sendir verkefnastjóri umsækjendum niðurstöðu námsstjórnar.
  7. Einkunnir úr fyrra námi og einingarbær námskeið sem tekin eru í Opna háskólanum munu ekki fylgja stúdentum heldur er hvert tilfelli metið fyrir sig.

 

Lokaverkefni

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um það hvernig á að setja upp kápu á lokaritgerð eða verkefni sem unnið er í námi við HR. 

Mælt er með því að hala skjölunum niður og nota Acrobat til að setja inn texta. 

Ef þú ert ekki með Acrobat er einnig hægt að skrifa textann inn í vafranum og prenta/vista svo skjalið sem pdf. Ekki er mælt með að nota Firefox eða Safari ef sú leið er farin.

Ef einhverjar spurningar vakna er best að leita til skrifstofu deildar.

Vinsamlega athugið að ef nemendur óska eftir prentuðu eintaki þá þarf að prenta kápurnar í prentsmiðju eða prentþjónustum og meðfylgjandi ritgerðarkápa notuð:

Lærdómsviðmið námsbrauta við viðskiptadeild

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Var efnið hjálplegt? Nei