Zotero
Heimildaskráningaforrit
Bókasafnið mælir með Zotero sem er ókeypis heimildaskráningaforrit sem hjálpar til við að halda utan um heimildir, gerir tilvísanir í texta og býr svo til heimildaskrá í ritgerðum og verkefnum samkvæmt ákveðnum staðli.
- Opin námskeið í Zotero (dagskrá)
Um Zotero
Zotero
er ókeypis heimildaskráningaforrit þróað í opnum aðgangi sem virkar
bæði með Windows og Mac stýrikerfum. Það er hægt að nota Zotero með
Chrome og Firefox vöfrunum. Zotero virkar ekki með Internet
Explorer. Hægt er að nota Zotero með LaTeX með því að nota BibTeX.
Innbyggðir í Zotero eru nokkrir heimildaskráningarstaðlar, þar á
meðal APA-staðallinn á ensku. Að auki er hægt að bæta við yfir 1000
stöðlum, m.a. APA, OSCOLA og IEEE á íslensku og einnig má skilgreina eigin
staðal í Zotero.
Ummæli nemenda:
Ingibjörg: ,,Ég er nýbúin að kynnast Zotero og er agndofa yfir því hvað þetta einfaldar manni lífið. Heimildaskráning hefur alltaf verið flókin og seinleg en Zotero sér hreinlega um þetta fyrir mann og er tiltölulega einfalt að tileinka sér. Þetta er hrein snilld!"
Íris: ,,Zotero er mesta snilldin, er ekkert smá ánægð að hafa byrjað að nota þetta forrit sem fyrst eftir að ég byrjaði í sálfræðinni, þetta hefur hjálpað mér ekkert smá mikið með heimildarvinnu."
Þorgeir: ,,Zotero er besta forrit sem hefur verið gert, auðveldar heimildavinnuna."
Jóhanna: ,,Zotero gefur manni tíma til að eyða í ritgerðarvinnu sem annars færi í að búa til heimildaskrá."
Eva: ,,Þetta er mesta snilldarforrit sem til er við heimildarvinnu og ég er alltaf að átta mig betur og betur á því eftir því sem ég nota það meira."
Sigurður: ,,Betra en ristað brauð ;-)"
Leiðbeiningar
Fyrir aðrar spurningar er gott að byrja á að athuga hvort Google sé með svörin
Nýir staðlar
Leiðbeiningar um hvernig setja skal nýjan staðal inn í Zotero - LESA FYRST
- hægrismelltu og veldu "save link as" skv. leiðbeiningunum
Staðall: | Uppfært: | Leiðbeiningar: |
Uppfært 7. sept 2020 | Zotero leiðbeiningar fyrir APA | |
Uppfært 8. des 2015 |
Zotero leiðbeiningar fyrir IEEE
|
|
Uppfært 6. des 2019 | Zotero leiðbeiningar fyrir Oscola |