Minecraft: Mod Forritun - Helgarnámskeið
Minecraft: Mod-forritun – Helgarnámskeið
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 11 - 15ára
Um námskeiðið
Vissir þú að í Minecraft er hægt að bæta við nánast hverju sem er með forritun? Til dæmis er hægt að búa til nýja dýrategund eða jafnvel nýja vídd.
Á þessu helgarnámskeiði læra nemendur að nota forritið MCreator til þess að forrita sitt eigið mod á spennandi og skemmtilegan máta. Nemendur skapa mod sem hægt er að deila með félögum og fá innsýn í Java™, forritunarmálið sem liggur að baki, og grunnatriði hlutbundinnar forritunar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa reynslu af Minecraft-spilun og langar að kynnast forritun fyrir Minecraft-leikinn. Hjá Skema er opinber Minecraft® vara ekki í boði og Háskólinn í Reykjavík er hvorki tengdur Mojang né Microsoft.
Skipulag og verð
- Dagar: laugardagur og sunnudagur
- Tími: 13:00–16:00
- Verð: 15.900 kr. á dag
- Dagsetningar: 21. og 22. október 2026
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler — hlekkur á eftir að berast fyrir þetta námskeið
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300