Minecraft: Grunnur & lestur – Helgarnámskeið
Minecraft: Grunnur & lestur – Helgarnámskeið (7–8 ára)
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 7 - 8 ára
Um námskeiðið
Á þessu helgarnámskeiði fara Minecraft og lestur saman. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem vilja læra á leikinn og æfa lesturinn í leiðinni.
Nemendur lesa stutta texta um heim Minecraft og prófa svo það sem þeir lásu um í leiknum sjálfum. Þeir læra að koma sér af stað í nýjum heimi, smíða verkfæri, veiða fisk, rækta garð og temja dýr eins og ketti, hunda og hesta. Þannig æfa þeir lestur og lesskilning um leið og þeir öðlast öryggi í leiknum.
Engin reynsla af Minecraft er nauðsynleg. Hjá Skema er opinber Minecraft® vara ekki í boði og Háskólinn í Reykjavík er hvorki tengdur Mojang né Microsoft.
Skipulag og verð
- Dagar: laugardagur og sunnudagur
- Tími: 13:00–15:00
- Verð: 10.900 kr.
- Dagsetningar: 28. og 29. november 2026
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300