27. ágúst 2024
Dr Stefan Wendt skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR
27. ágúst 2024
Dr Stefan Wendt skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR

Dr. Stefan Wendt, viðskiptafræðiprófessor, hefur verið skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Stefan lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Bamberg, Þýskalandi, árið 2010 og meistaraprófi frá sama skóla í alþjóða og evrópskum viðskiptafræðum árið 2005.
Það er mér sönn ánægja að vera hluti af því sterka teymi sem starfar við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Efnahagslífið í heild og fyrirtækin krefjast uppfærðrar þekkingar, færni og hæfni. Í viðskipta- og hagfræðideild sköpum við og miðlum þekkingu og eflum færni og hæfni með framúrskarandi kennslu, framsæknum rannsóknum og samvinnu við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila í samfélaginu. Ég er þakklátur fyrir að hljóta tækifæri til að leggja mitt af mörkum í því.
Stefan var prófessor og deildarforseti við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst frá 2021 til júlí 2024. Áður hafði hann starfað við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2015. Stefan starfaði við rannsóknir og kennslu við Háskólann í Bamberg á árunum 2005 til 2015 og var einnig á þeim tíma gestaprófessor við háskóla í Frakklandi, Þýskalandi og Kanada.
Sérsvið Stefans eru m.a fjármál fyrirtækja, sjálfbær fjármál, stafræn fjármál og stjórnarhættir fyrirtækja. Hann hefur ritað fjölda greina á sínu sviði sem bæði hafa verið birtar í bókum og ritrýndum tímaritum. Auk þess hefur Stefan flutt erindi víða um heim, bæði á Íslandi, Norðurlöndunum, Evrópu og í Bandaríkjunum.
Nýjustu fréttirnar
Sjá allar fréttir