Stuðningur við nýsköpun og frumkvöðla
Nýsköpun - taktu þátt!

Háskólinn í Reykjavík er bakhjarl fjölbreyttra nýsköpunarkeppna, hraðla og fræðslu sem hjálpar frumkvöðlum að fara frá hugmynd að næstu skrefum í verðmætasköpun. Með sterkum tengslum við atvinnulíf og nýsköpunarumhverfi færðu tækifæri til að prófa og þróa áfram hugmyndir, fá endurgjöf og byggja tengslanet sem nýtist áfram.
Við hvetjum þig til að taka þátt!
Stuðningur við frumkvöðla
Háskólinn í Reykjavík styður við frumkvöðla og nýsköpun með því að tengja saman þekkingu, rannsóknir og atvinnulíf, þannig að góðar hugmyndir geti orðið að raunverulegri verðmætasköpun. Í takt við hlutverk HR um að skapa tækifæri og efla samkeppnishæfni og lífsgæði, leggjum við áherslu á hagnýta fræðslu, tengslanet og aðstöðu þar sem nemendur og starfsfólk geta þróað hugmyndir sínar áfram.
Masterclass Auðnu tæknitorgs
Háskólinn í Reykjavík er einn af eigendum Auðnu þekkingar- og tæknitorgs.
Auðna stendur reglulega fyrir tveggja til þriggja daga Masterclass í verðmætasköpun í samstarfi við eigendur. Á námskeiðunum koma fram og deila reynslu sinni og þekkingu; vísindafrumkvöðlar, viðskiptaþróunaraðilar, ráðgjafar, sérfræðingar og fjárfestar. Farið er yfir sérstöðu vísindalegrar nýsköpunar og grunnþætti verðmætasköpunar úr rannsóknar niðurstöðum. Einnig er farið yfir hugverkarétt, fjármögnunarleiðir og samninga sem og vörður á leiðinni og þjálfun fyrir kynningu á hugmyndinni. Masterclass Auðnu hentar vel starfsfólki og doktorsnemendum sem vilja huga að hagnýtingu rannsókna sinna.
Seres nýsköpunar- og frumkvöðlasetur HR

Seres nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Háskólans í Reykjavík, er staðsett í Bragganum við Nauthólsvík, skammt frá HR. Útsýnið yfir Nauthólsvík og út á sjó er einstaklega vel til þess fallið að fylla hvern sem er innblæstri.
Í Seres er aðstaða fyrir nemendur og starfsfólk til að hrinda nýsköpunarhugmyndum sínum í framkvæmd. Þar fá frumkvöðlar aðgang að skrifborðum, fundarherbergi, kaffiaðstöðu og tengslaneti. Öllum er velkomið að sækja um en núverandi nemendur HR ganga fyrir.
Frumkvöðlasetrið er rekið af háskólaskrifstofu HR í samstarfi við Sprota nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd SFHR.
Frekari upplýsingar veitir háskólaskrifstofa - atvinnulífstengsl
Hugmynda- og frumkvöðlakeppni

Vitinn er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og hefur verið haldin árlega síðan árið 2015. Keppnin er opin öllum nemendum HR, þvert á deildir í grunnnámi og/eða meistaranámi.
Vitinn er vettvangur þess að; leysa verkefni fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi á þremur dögum, kynna hugmynd fyrir dómnefnd og njóta aðgangs að sérfræðingum úr sjávarútvegi og öðrum geirum atvinnulífsins og fá útrás fyrir sköpunargleðina.
Frekari upplýsingar um Vitann má finna hér.
Forritunarkeppni framhaldsskólanna
Háskólinn í Reykjavík hefur staðið fyrir Forritunarkeppni framhaldsskólanna í fjölmörg ár og hefur ásókn í keppnina aukist ár frá ári enda til mikils að vinna. Forritunarkeppni framhaldsskólanna er ekki eingöngu ætluð þeim sem hafa reynslu af forritun fyrir heldur er hún fyrir alla framhaldsskólanema, jafnt þá sem hafa lært forritun og aðra. Við hvetjum því alla til að koma og prófa. Keppninni er skipt í þrjár deildir, eftir erfiðleikastigi: alpha, beta og delta.
Frekari upplýsingar um forritunarkeppni framhaldsskólanna má finna hér.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk grunnskóla. Keppnin var haldin í fyrsta skipti árið 1991 og hefur verið haldin, óslitið síðan. Undirbúningur fer fram í skólum landsins samhliða skólaárinu þar sem nemendur fá kennslu við að þróa verkefni á sínu áhugasviði, allt frá hugmyndum til veruleika. Þetta ferli virkjar sköpunarkraft nemenda í lausnamiðuðum hugsunarhætti og eykur sjálfstraust þeirra og frumkvæði.
Eigandi NKG er Mennta- og menningarmálaráðuneytið en Menntavísindasvið Háskóla Íslands sér um rekstur keppninnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Samband íslenskra sveitarfélaga, Arion banka, Samtök Iðnaðarins, ELKO, IKEA, grunnskóla o.fl. aðila.
Frekari upplýsingar um Nýsköpunarkeppni grunnskólanna má finna hér.