Upplýsingar fyrir fjölmiðla
Fjölmiðlar
Vinsamlega beinið fyrirspurnum til Láru Bjargar Björnsdóttur, verkefnastjóra miðlunar og samskipta.
Háskólinn í Reykjavík kappkostar að svara fljótt og vel þeim fyrirspurnum sem berast háskólanum.
Samskipti og markaðsmál
Samskiptasvið ber ábyrgð á ásýnd Háskólans í Reykjavík út á við og sér um markaðs- og kynningarstarf háskólans. Í því felst m.a. vísindamiðlun, viðburðastjórnun, auglýsingagerð, almannatengsl, umsjón með samfélagsmiðlum, ljósmyndun, myndbandagerð, hönnun og útgáfa efnis. Sviðið veitir einnig þjónustu og ráðgjöf varðandi kynningarstarf og þekkingarmiðlun einstakra deilda, sviða, rannsóknasetra, rannsóknastofa, rannsóknahópa og starfsmanna, svo sem vegna ráðstefna, fyrirlestra, málstofa og heimsókna í framhaldsskóla.
Árlega eru haldnir um 200 viðburðir á vegum háskólans og notendur á miðlum HR að meðaltali 35 þúsund á mánuði.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni samskipta, Ásthildi Gunnarsdóttur.
Merki HR
Um merkið
Merkið er hannað af Alla Metal og Annettu Scheving, grafískum hönnuðum, árið 2009. Merki Háskólans í Reykjavík er unnið út frá aðalbyggingu hans við Nauthólsvík og undirstrikar það sköpun og miðlun þekkingar og þann kraft, metnað og frumkvæði sem einkennir starfsemi HR. Einingarnar sem mynda hringformið snertast, skarast og mynda hreyfingu eða flæði. Einingarnar eru ólíkar að stærð og lögun en saman mynda þær mikilvæga heild. Merkið er opið og einingarnar vísa frá miðju – beina flæði fólks og þekkingar frá kjarnanum, eins og geislar og vísa þar með til miðlunar hugmynda og þekkingar.
Litur
Rauður litur stendur meðal annrs fyrir kraft, kjark, lífsgleði, viljastyrk, metnað, raunsæi og hlýju. Rauður er einn af frumlitunum og sá litur sem augað nemur hvað sterkast.
Grunnform merkisins er hringur
Hringformið hefur hvorki upphaf né endi og er tákn einingar, heildar, óendanleika og alheims.
Merkið í hárri upplausn
Hér er að finna þrjár útgáfur merkisins í hárri upplausn. Þessi skjöl er best að nota, til dæmis í Word og annars staðar þar sem efnið er prentað út.



Merkið í lágri upplausn
Hér er að finna þrjár útgáfur merkisins í lágri upplausn. Þessar útgáfur er best að nota á vefsíðum og annarri skjábirtingu þar sem efnið er ekki prentað út.



Án bakgrunns
Hér er að finna þrjár útgáfur merkisins án bakgrunns. Þessar útgáfur er best að nota til dæmis í Power Point og annars staðar þar sem merkið þarf að vera án bakgrunns.



Vector
Í þessu skjali er að finna allar útgáfur merkisins og liti. Þetta skjal er best að nota þegar unnið er með efni til prentunar í hönnunarforritum svo sem Illustrator og Indesign.
Myndir af HR
Myndir af Háskólanum í Reykjavík og nærumhverfi.







