Laust starf í Eignatjónum - Sjóvá
Langar þig að vinna hjá Fyrirtæki ársins? Sjóvá leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila til að bætast í hópinn. Í boði er spennandi starf í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 við mat og uppgjör fasteigna- og lausafjártjóna.
Hjá Sjóvá starfar samstilltur hópur fólks sem leggur metnað í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á góðan starfsanda, frábært mötuneyti og öflugt félagslíf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina vegna tjónsatburða
- áætlanagerð vegna tjóna
- forvarna- og áhættuskoðanir
- eftirfylgni og samstarf við þjónustuaðila okkar
Hæfniskröfur
- menntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingafræði/iðnfræði
- góð tölvufærni
- rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
- jákvætt hugarfar, góð aðlögunarhæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- gott vald á íslensku og ensku
Vinsamlegast sendið umsókn á Ólaf Þór Ólafsson, forstöðumann Eignatjóna, á olafurthor@sjova.is merkt „Umsókn“. Umsóknarfrestur er til og með 12. september nk.
- Nafn tengiliðs: Ólafur Þór Ólafsson forstöðumaður Eignatjóna
- Netfang tengiliðs: olafurthor@sjova.is
- Heimilisfang fyrirtækis: Kringlan 5

- Umsóknarfrestur er til og með 12. september nk.