Námið
Rannsóknir
HR

21. október 2025

Þriðja vinnustofa Snjallræðis haldin í HR

Þriðja vinnustofa Snjallræðis fór fram í Háskólanum í Reykjavík helgina 17.-18. október þar sem Ásgeir Jónsson, kennari við viðskipta-og hagfræðideild, og einn af   þjálfurum Snjallræðis, leiddi teymin í gegnum fjölbreytt og hagnýt verkefni. 

Vinnustofan, sem er hluti af MITdesignX aðferðafræðinni sem notast er við í Snjallræði, ber yfirskriftina Envision. Fyrri daginn var lögð áhersla á að móta skýra framtíðarsýn sem sameinar teymið og heldur því á réttri braut. Jafnframt var fjallað um mikilvægi sjálfbærs rekstrarlíkans þar sem jafnvægi er á milli tekna og útgjalda, óháð því hvort verkefnið sé rekið í hagnaðarskyni eða ekki. 

Ásgeir Jónsson, kennari við viðskipta-og hagfræðideild HR, leiddi teymin í gegnum fjölbreytt og hagnýt verkefni.

Seinni daginn var sjónum beint að áframhaldandi þróun stefnunnar, hönnun viðskiptamódels og markaðsáætlunar sem og vinnumenningu og markmið teymisins. Rætt var um hlutverk stofnenda, samskipti, ákvarðanatöku og hvernig teymi geti unnið saman á skilvirkan og árangursríkan hátt. 

Samvinna og gagnkvæm endurgjöf eru hjartað í Snjallræði. Þar lærir hvert teymi ekki aðeins af þjálfurunum heldur líka hvert af öðru ,þau spegla sig í reynslu, nálgun og hugsunum jafningja sinna. Þessi jafningjafræðsla er einn mikilvægasti þátturinn í ferlinu; hún skapar vettvang til að deila hugmyndum, veita og þiggja uppbyggilega endurgjöf og styrkir teymin í að sjá ný sjónarhorn, þróa hugmyndir sínar áfram og öðlast trú á eigin getu. Þannig verður allt ferlið bæði dýrmætt og hvetjandi. 

Vinnustofunni lauk með sundspretti í sjónum á Ylströndinni í Nauthólsvík sem var frískandi og skemmtilegur endir á annasamri og árangursríkri helgi.

Undirritaður var samstarfssamningur nú í ágúst á milli Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík um sameiginlega verkefnastjórn Snjallræðis. Snjallræði hefur frá stofnun árið 2018 verið leiðandi vettvangur fyrir þróun framtíðarlausna er stuðla að sjálfbærni og bættu samfélagi.

Í Snjallræði fá frumkvöðlar tækifæri til að þróa áfram hugmyndir sínar og gera þær að lausn, vöru eða verkefni. Snjallræði er ætlað vísindafólki, nemendum og starfsfólki háskólanna en er auk þess opið frumkvöðlum og öllum þeim sem brenna fyrir stórum hugmyndum.  

Nýjustu fréttirnar
Sjá allar fréttir