Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
18. nóvember 2026

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir: „Auka þarf sérkunnáttu í lögreglunni til að hægt sé að rannsaka kynferðisbrot gegn börnum“

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í refsirétti og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, var í síðustu viku fengin til viðtals hjá RÚV í framhaldi af umfjöllun Kveiks um kynferðisbrot gegn börnum og framleiðslu á barnaníðsefni. Í samtalinu við RÚV ræddi Svala hvernig öryggi barna í skóla-, íþrótta- og æskulýðsstarfi sé ekki alltaf tryggt þar sem erfitt geti reynst að nálgast sakavottorð þeirra sem vinna með börnum.

Svala nefnir í samtali við vef HR að í íslenskri löggjöf séu fjölmörg ákvæði sem leggi fortakslaust bann við því að einstaklingar sem hafi hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot séu ráðnir til starfa innan um börn eða aðra viðkvæma hópa eða hafi sinnt sjálfboðaliðastarfi þegar það átti við.

„Til þess að ábyrgjast að þessu banni sé framfylgt þarf að tryggja greiðan og skjótvirkan aðgang yfirmanna og stjórnenda að upplýsingum úr sakaskrá í því markmiði að skima fyrir áhættuþáttum og treysta öryggi barna í skólastarfi, íþróttastarfi og á æskulýðsvettvangi”, segir Svala.

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir.

Í þætti Kveiks í síðustu viku, Níðingar á netinu, var fjallað um hvernig barnaníðsefni flæðir um netið og aðgerðir stjórnvalda til að spyrna gegn því.

„Auka þarf sérkunnáttu í lögreglunni til að hægt sé að rannsaka brot af þessu tagi, tryggja að sérkunnáttan skili sér til ákæruvaldsins og áfram til dómstóla, sem hafa það hlutverk að taka afstöðu til brotanna og dæma brotamenn til refsingar. Þá er ekki síður mikilvægt að lögreglan hafi yfir þeim mannafla og tæknibúnaði að ráða sem geri henni kleift að rannsaka brotin á fullnægjandi og skilvirkan hátt,” segir Svala við vef HR.

Frumvarp sem hækkaði refsimörk samþykkt í hennar formannstíð

Svala ræddi um öryggi barna í skóla-, íþrótta- og æskulýðsstarfi í kvöldfréttum Rásar 1 og sömuleiðis í sjónvarpsfréttum RÚV. Í hádegisfréttum Rásar 1 ræddi hún svo sérstaklega um dóma í kynferðisbrotum gegn börnum.

Svala var formaður refsiréttarnefndar um tólf ára skeið og í formannstíð hennar var m.a. lagt fram og samþykkt frumvarp til breytinga á almennum hegningarlögum sem hækkaði refsimörk fyrir vörslu, dreifingu, innflutning og framleiðslu barnaníðsefnis úr 2 árum í 6 ár.

18. nóvember 2026
Nýjustu fréttirnar