Aðrir stjórnendur
Aðstoðarrektorar
Aðstoðarrektorar starfa undir stjórn rektors og sinna afmörkuðum málaflokkum innan háskólans í samræmi við stefnu skólans. Þeir bera ábyrgð á stefnumótun, eftirfylgni og þróun sinna málaflokka og stuðla að því að markmið háskólans náist á skilvirkan og faglegan hátt. Nánari umfjöllun um hlutverk og ábyrgð aðstoðarrektora má finna hér að neðan.
Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir,
aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson,
aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og
atvinnulífstengsla
Framkvæmdastjóri reksturs
Framkvæmdastjóri reksturs starfar undir stjórn rektors og ber ábyrgð á heildarskipulagi, samhæfingu og eftirfylgni rekstrar háskólans. Hann gegnir lykilhlutverki í að tryggja að rekstur sé skilvirkur, traustur og í samræmi við stefnu háskólans, og vinnur náið með stjórnendum og forstöðumönnum að framþróun og stöðugum umbótum á rekstrarumhverfi hans. Nánari umfjöllun um ábyrgðarsvið og verkefni framkvæmdastjóra reksturs má finna hér að neðan.
Jón Haukur Arnarson,
framkvæmdastjóri reksturs
Forsetar sviða
Forsetar sviða og rektor eiga frumkvæði að mótun stefnu fyrir skólann og hafa umsjón með innleiðingu hennar. Forsetar sviða koma, í samráði við rektor, fram fyrir hönd skólans inn á við og gagnvart aðilum utan hans. Forseti sviðs er staðgengill rektors.
- Sviðsforseti samfélagssviðs er dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir
- Sviðsforseti tæknisviðs er dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson
Deildarforsetar
Forseti deildar er ráðinn af forseta sviðs, að undangenginni umsögn matsnefndar. Forseti deildar fer með faglega stjórn deildar og skal eiga frumkvæði að mótun stefnu fyrir deildina. Forseti deildar ber ábyrgð á rekstri og fjárhag deildarinnar gagnvart sviðsforseta.
Ásgeir Ásgeirsson
Deildarforseti tæknifræðideildar
Dr. Ármann Gylfason
Deildarforseti verkefræðideildar
Dr. Gunnar Þór Pétursson
Deildarforseti lagadeildar
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir
Deildarforseti Íþróttafræðideildar
Dr. Henning Arnór Úlfarsson
Deildarforseti Tölvunarfræðideildar
Dr. Kamilla Rún Jóhannsdóttir
Deildarforseti sálfræðideildar
Dr. Stefan Wendt
Deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar