Taugavísinda- og heilbrigðistæknideild
Um deildina
Nám við deildina tengir saman taugavísindi, heilbrigðisvísindi, verkfræði, tölvunarfræði, sálfræði, líffræði og gagnavísindi. Nemendur fá þannig tækifæri til að vinna þvert á hefðbundin fræðamörk og takast á við viðfangsefni þar sem heilbrigði og tækni mætast.
Alþjóðlegt samstarf
Deildin er fræðileg heimastöð evrópskra samstarfsnámsleiða sem þróaðar eru í tengslum við NeurotechEU. Samstarfið skapar vettvang fyrir sameiginlegt nám, kennslu og alþjóðlega reynslu með samstarfsháskólum í Evrópu.
European Master in Neurotechnology (EMN) mun hefjast haustið 2027. Þar vinna nemendur þvert á fjögur fræðasvið: Brain Systems, Clinical, Technology og Computation. Siðferðileg, lagaleg og samfélagsleg álitamál (ELSA) eru fléttuð inn í allt námið. Nemendur sérhæfa sig í þremur sviðum af fjórum. EMN er sameiginlegt nám sjö evrópskra háskóla. Nemendur velja upphafsháskóla og taka þriðju önn við samstarfsháskóla.
Listi yfir samstarfsháskóla EMN
- Radboud University, Nijmegen í Hollandi
- Universidad Miguel Hernández de Elche, Spáni
- Rheinische Friedrich-Wilhelms-Universität Bonn, Þýskalandi
- Boğaziçi Üniversitesi, Istanbúl í Tyrklandi
- Université de Lille, Frakklandi
- Universitatea de Medicină și Farmacie „Iuliu Hațieganu“ Cluj-Napoca, Rúmeníu
NeurotechEU er bandalag tíu háskóla, þar á meðal Háskólans í Reykjavík, með Radboud, Karolinska Institutet, Bonn, Lille, Innsbruck, Cluj-Napoca, Miguel Hernández og Boğaziçi.
Verkleg þjálfun
Deildin byggir upp rannsóknarstofur, tækjabúnað og tölvu- og gagnainnviði fyrir verklega og rannsóknatengda kennslu. Innviðirnir eru hugsaðir sem sameiginleg auðlind sem styður þverfaglegt nám og samstarf innan Háskólans í Reykjavík.
Rannsóknir
Rannsóknir starfsfólks deildarinnar ná meðal annars til hugrænnar og hagnýtrar sálfræði, svefns og taugaþroska, atferlistaugavísinda og greiningar á álagi og þreytu með lífeðlisfræðilegum mælingum og gervigreind. Deildin er ný og rannsóknastarf hennar er í uppbyggingu.

Samstarf
Deildin byggir á alþjóðlegu samstarfi innan NeurotechEU og þróun sameiginlegra evrópskra námsgráða. Þeir samstarfsaðila sem sérstaklega koma að þróun EMN námsins eru Karolinska Institutet og Medical University of Innsbruck.
Listi yfir samstarfsháskóla EMN
- Radboud University, Nijmegen í Hollandi
- Universidad Miguel Hernández de Elche, Spáni
- Rheinische Friedrich-Wilhelms-Universität Bonn, Þýskalandi
- Boğaziçi Üniversitesi, Istanbúl í Tyrklandi
- Université de Lille, Frakklandi
- Universitatea de Medicină și Farmacie „Iuliu Hațieganu“ Cluj-Napoca, Rúmeníu
NeurotechEU er bandalag níu háskóla, þar á meðal Háskólans í Reykjavík, með Radboud, Karolinska Institutet, Bonn, Lille, Innsbruck, Cluj-Napoca, Miguel Hernández og Boğaziçi.
Starfsfólk
Vísindamenn & fastráðnir kennarar
Deildarforseti
Samfélagsábyrgð
Deildin styður uppbyggingu náms, nýsköpunar og þverfaglegs samstarfs á sviðum þar sem taugavísindi, heilbrigðisvísindi, gagnavísindi og tækni mætast. Með sameiginlegum innviðum og alþjóðlegu samstarfi skapar hún grundvöll fyrir þróun lausna og þekkingar sem tengjast heilbrigði og heilbrigðistækni.
Dæmi um það er European Master in Neurotechnology, sameiginlegt meistaranám sjö evrópskra háskóla.
Skipulag
Deildarforseti
Deildarforseti er framkvæmdastjóri deildar og ber ábyrgð á starfsemi og fjárhag hennar gagnvart rektor. Deildarforseti ræður kennara og aðra starfsmenn til deildarinnar í umboði rektors. Hann á frumkvæði að mótun stefnu fyrir deildina og stýrir daglegu starfi hennar. Deildarforseti gerir fjárhagsáætlun fyrir deild og skal hún lögð fram til umfjöllunar í framkvæmdastjórn HR sem hluti af heildar fjárhagsáætlun skólans. Deildarforseti skipar deildarráð og boðar til funda í því og heldur einnig reglulega deildarfundi.
Námsráð
Í námsráði sitja þrír starfsmenn deildarinnar skipaðir á deildarfundi til eins árs í senn, þar af einn sem formaður.
Hlutverk námsráðs er að vinna ásamt forseta deildar að þróun námsins, þar á meðal skipulagi þess og gæðum, tilhögun kennslu, kennsluhátta og námsmats og gera tillögur til deildarinnar um framangreint eftir því sem þörf krefur. Þá heldur námsráð utan um samningagerð við samstarfsstofnanir og fyrirtæki deildarinnar í tengslum við starfsnám nemenda ásamt því að afgreiða erindi frá nemendum varðandi námsleyfi, mat á fyrra námi og umsóknir um starfsnám og skiptinám.
Rannsóknarráð
Hlutverk ráðsins er að vinna ásamt forseta deildar að eflingu rannsókna innan deildar HR í innlendu og alþjóðlegu samhengi. Í því felst m.a:
- Að móta stefnu í rannsóknum innan deildarinnar. Stefnumótun skal unnin í samráði við starfsmenn deildar. Stefna skal mótuð til tveggja ára í senn. Stefnan skal lögð fram og kynnt af rannsóknarráði fyrir deildarfundi einu sinni á ári en á þeim fundi skal jafnframt farið yfir árangur síðastliðins árs.
- Að stuðla að rannsóknarsamstarfi við innlenda og erlenda aðila, í samráði við starfsmenn deildar.
- Að halda utan um mat á rannsóknarstarfi innan deildarinnar og bregðast við niðurstöðum þess.
- Að móta stefnu varðandi rannsóknarsamstarf milli kennara og nemenda.
- Að vinna að kynningu á rannsóknarstarfi við deildina.
- Að fara með málefni doktorsnáms í samræmi við námslýsingu doktorsnáms við deild HR.
- Að vinna með rannsóknarráði HR.
- Þrír akademískir starfsmenn eru skipaðir á deildarfundi til setu í rannsóknarráði til tveggja ára í senn. Forseti deildar gerir tillögu til deildarfundar um formann rannsóknarráðs. Að öðru leyti skiptir rannsóknarráð með sér störfum og getur sett sér starfsreglur sem mæla nánar fyrir um framkvæmd verkefna rannsóknarráðs.
Trúnaðarmaður nemenda
Hagsmunafulltrúar nemenda skólaárið 2027 - 2028 eru:
- Verður birt síðar


