Borgarlínuframkvæmdir
við Háskólann í Reykjavík
Uppbygging innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR hófst 28. ágúst 2026. Áætluð verklok eru í júlí 2028. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu.
Framkvæmdin felur í sér að sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.
HR á í stöðugu samtali við alla fagaðila um aðlögun Borgarlínu að stúdentaíbúðum háskólans og öllum lóðum hans við Nauthólsveg, Menntaveg og Menntasveig. Allar mikilvægar upplýsingar um þróun verksins munu birtast hér.
Áhersla er lögð á að lágmarka áhrif framkvæmda á umferð allra samgöngumáta. Gerð hefur verið áætlun um bráðabirgðavegi og stígtengingar á framkvæmdatíma, eins og sýnt er á yfirlitskorti fyrir 1. áfanga. Sú áætlun miðar að því að byrjað verði á framkvæmdum nyrst á framkvæmdasvæðinu og verkið unnið til suðurs í 7 áföngum.
Ásýndarmyndir
Hvað þýða framkvæmdirnar fyrir aðgengi?
Aðgengi fyrir ökutæki, hjólreiðamenn, gangandi vegfarendur og almenningssamgöngur verður viðhaldið allan framkvæmdatímann með hjáleiðum.
Ein akrein í hvora átt verður opin allan verktímann. Tengingar verða gerðar við stíga í Öskjuhlíð og Strætó-stoppistöðvar verða opnar allan verktímann en verða færðar til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.
Frekari upplýsingar um þær breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum á svæðinu sem framkvæmdirnar fela í sér má finna á vefslóðinni Nauthólsvegur-HR — Borgarlínan.
Ítarlegri upplýsingar um Borgarlínu og uppbyggingu hjóla- og göngustíga er líka að finna inni á síðu Verksjá. Þar má meðal annars finna ýmsar skýrslur og greiningar og sundurliðun verkefnisins niður á hina ýmsu samgöngumáta.


Áhrif framkvæmda í 1. áfanga
Hjáleiðir á framkvæmdatíma
Nauthólsvegur
- Allan framkvæmdatímann verða hjáleiðir fyrir akandi, hjólandi og gangandi.
- Ein bílakrein í hvora átt opin allan framkvæmdatímann. 1+1 eins og verið hefur.
- Tengingar við stígana í Öskjuhlíð.
- Stoppistöðvar Strætó opnar allan framkvæmdatímann en færðar til eftir framvindu verksins.
Áhrif framkvæmda við HR
Aðgengi og bílastæði
- Aðgengi óskert og engin áhrif á bílastæði við HR í 1. áfanga framkvæmda.
- Ein bílakrein í hvora átt opin allan framkvæmdastímann. 1+1 eins og verið hefur.
- Tengingar við stígana í Öskjuhlíð.
- Stoppistöðvar Strætó opnar allan framkvæmdatímann en færðar til eftir framvindu verksins.
Áhrif framkvæmda við Nauthólsveg
Aðgengi og bílastæði
- Aðgengi óskert og engin áhrif á bílastæði.
- Ein bílakrein í hvora átt opin allan framkvæmdastímann. 1+1 eins og verið hefur.
- Tengingar við stígana í Öskjuhlíð.
- Stoppistöðvar Strætó opnar allan framkvæmdatímann en færðar til eftir framvindu verksins.
- Sorðhirða tryggð með venjubundnum hætti.
Tímarammi framkvæmda

Lokið skal við framkvæmdina í heild í júlí 2028
Við hvetjum alla hagaðila og vegfarendur til að kynna sér framkvæmdina vel og hafa samband ef frekari upplýsingar vantar eða ef spurningar vakna.
Sendið tölvupóst: borgarlinan@borgarlinan.is





