Fjallað um dróna frá margvíslegum sjónarhornum á ráðstefnu í HR
Í síðustu viku stóð Kveikja.ai í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykjavík fyrir ráðstefnu um dróna og öryggi. Tölvunarfræðideild og verkfræðideild HR áttu sömuleiðis aðkomu að ráðstefnunni, sem fór fram í HR og á Nauthóli.
Á ráðstefnunni komu fulltrúar löggæslu, varnarmála, iðnaðar, akademískra rannsókna og notenda saman til þess að ræða stöðu og framtíð drónatækni í íslensku og alþjóðlegu samhengi.
Dr. María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild HR, segir markmiðið með ráðstefnunni hafa verið að ná saman ólíkum aðilum og fjalla um dróna frá margvíslegum sjónarhornum fræða og framkvæmdar.

Vekur upp spurningar sem tengjast öryggi og siðferði
„Hugmyndin að baki þessari ráðstefnu kviknaði á ráðstefnunni Gervigreind og samfélag sem haldin var hér við Háskólann í Reykjavík fyrr á þessu ári. Þar var sjónum beint að þeim fjölbreyttu áhrifum sem gervigreind hefur á samfélög okkar, sem og á samskipti fólks og einstaklinga.
Það var einmitt þessi fjölþætta sýn sem mótaði dagskrá ráðstefnunnar. Við viljum kanna dróna sem verkfæri og tækni, sem tæki og nýsköpun, en jafnframt öðlast betri skilning á notkun þeirra í samhengi við öryggi og almannaöryggi. Þetta vekur að sjálfsögðu upp spurningar sem tengjast öryggi og siðferði, og munum við einnig leitast við að fjalla um þær,“ sagði María Rún meðal annars í opnunarræðu sinni.
María Rún segir vel hafa tekist til á ráðstefnunni og að mæting hafi verið með besta móti, þar sem yfir 100 gestir skráðu sig. Fjöldi fyrirlesara úr ólíkum áttum hélt erindi og Sunna Gunnars Marteinsdóttir var fundarstjóri.

Dagsetning
Deila