Hart tekist á í líflegum pallborðsumræðum um ESB
Enginn skortur var á átökum í líflegum pallborðsumræðum í dag sem Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, boðaði til vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þátttakendur voru Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamaður og þáttastjórnandi Spursmála, Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður og lögfræðingur, Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar og lögfræðingur og Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, EBRD.


Vel mætt og yfir 600 stilltu inn
Pallborðsumræðurnar fóru fram í stofum M101 og V206 í HR og fundinum stýrði Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttamaður hjá Sýn. Vel var mætt í stofurnar í HR og þegar mest lét voru rúmlega 600 manns að horfa á beina útsendingu hjá Vísi.

Upptöku af umræðunum má finna hér.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi.
Dagsetning
Deila