Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
24. september 2026

HR og /sys/tur efla samstarf um konur og kvár í tæknigeiranum

Háskólinn í Reykjavík og /sys/tur, hagsmunafélag kvenna og kvára í tölvunarfræði við HR, hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning sem hefur það að markmiði að styðja við starfsemi félagsins og efla áhuga kvenna og kvára á námi og störfum á sviði tækni og þá sérstaklega tölvunarfræði.

Samstarfið felur meðal annars í sér að HR leggur /sys/trum til aðstöðu fyrir vinnustofur og fræðslufundi eftir því sem rými leyfir, auk þess sem HR mun veita tæknilega aðstoð við fjarfyrirlestra og styðja við þátttöku félagsins í viðburðum á borð við Vísindavöku, Tæknidaga og UTmessu.

Sem hluti af samningnum veitir HR /sys/trum árlegan 400.000 króna styrk til starfsemi félagsins, sem skiptist jafnt á milli tölvunarfræðideildar og tæknisviðs HR.

Henning Arnór Úlfarsson deildarforseti tölvunarfræðideildar, Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir forseti /sys/tra og Ólafur Eysteinn Sigurjónsson sviðsforseti tæknisviðs.

Samstarfið felur einnig í sér að /sys/tur og HR hafi samráð um stærri viðburði og átaksverkefni sem tengjast málefnum kvenna og kvára í tækni og kynni starfsemi hvors annars eftir því sem við á.

„Samningurinn er mikilvægt skref fyrir /sys/tur og veitir okkur enn betri tækifæri til að efla samfélag kvenna og kvára í tölvunarfræði við HR. Með stuðningi skólans getum við haldið áfram að skapa vettvang þar sem konur mynda tengsl, kynnast fyrirmyndum og sjá þau fjölbreyttu tækifæri sem bíða þeirra í tæknigeiranum,“ segir Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir, forseti /sys/tra.

Um /sys/tur:

Markmið /sys/tra er meðal annars að efla tengsl kvenna og kvára innan skólans og kynna félagsmeðlimi fyrir starfi þess, fyrirmyndum og reynslu kvenna og kvára í tæknigeiranum. Félagið mun áfram standa fyrir viðburðum og verkefnum sem styðja við þessi markmið og taka þátt í stærri viðburðum á borð við Stelpur, stálp og tækni, UTmessunni og Vísindavökunni.

24. september 2026
Nýjustu fréttirnar