Hvað þarf til að bora jarðhitaholu? Nemendur ISE kynnast jarðhitaiðnaðinum í návígi
Það er sjaldan sem við hugsum um hvað gerist áður en við kveikjum ljósin eða hækkum hitann. Að baki rafmagninu og heita vatninu sem við notum á hverjum degi liggja hins vegar umfangsmiklir innviðir, verkfræði og sérþekking.
Á Íslandi gegnir jarðvarmi lykilhlutverki í raforkuframleiðslu og hitun húsa. En til þess að nýta þessa orku þarf mun meira til en að bora einfaldlega holu í jörðina.
Nemendur við Iceland School of Energy (ISE) í Háskólanum í Reykjavík fengu nýverið tækifæri til að kynnast því sem felst í jarðhitaborunum í heimsókn á virkt borunarsvæði á Hellisheiði, þar sem starfsmenn Jarðborana tóku á móti þeim.
Fengu að sjá hvernig jarðhitaboranir virka
Að lokinni öryggiskynningu leiddu tveir starfsmenn Jarðborana nemendur um svæðið og kynntu fyrir þeim þann búnað og þá innviði sem þarf til að bora jarðhitaholu.
Nemendur fengu meðal annars kynningu á borstöngum og fóðringum í borholum, kerfum fyrir borvökva og þeim búnaði sem knýr borinn áfram. Þannig fengu þeir innsýn í hvernig ólíkir hlutar borunarinnar vinna saman.
Elín Dagmar, meistaranemi í orkuverkfræði við ISE, segir það hafa hjálpað mikið að fá að sjá umfang starfseminnar til þess að geta sett námsefnið í samhengi við raunverulegar aðstæður.

Við höfðum lært um borbúnað og hönnun borhola í kennslustundum, en það var mun auðveldara að skilja hvernig mismunandi íhlutir tengjast og hvers vegna þeir skipta máli þegar við fengum að sjá þetta allt saman í eigin persónu.
Elín Dagmar
Meistaranemi í orkuverkfræði við Iceland School of Energy
Sjors Wulff, nemi í hagnýtri eðlisfræði við háskólann í Twente í Hollandi sem nú stundar skiptinám við ISE, hreifst sérstaklega af vöktunarrýminu og því hversu miklum upplýsingum starfsmenn við jarðboranir þurfa að halda utan um til að tryggja örugga og skilvirka starfsemi.

Að læra af reynslunni
Heimsóknin var hluti af fjögurra vikna námskeiði ISE í borun og hönnun borhola (e. Drilling and Well Design), sem Sverrir Þórhallsson, lektor við ISE og ráðgjafi á sviði jarðhitaborana, kennir.
Sverrir býr yfir áratuga reynslu af jarðhitaborunum, meðal annars úr Íslenska djúpborunarverkefninu, og hefur einnig komið að alþjóðlegri þjálfun á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Hann miðlar þannig hagnýtri þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu inn í kennsluna.

Heimsóknin sýndi jafnframt hversu mikils virði það er að læra með nemendum sem hafa ólíkan náms- og fræðilegan bakgrunn.
„Mér finnst það hafa gert upplifunina áhugaverðari að fólk nálgaðist heimsóknina út frá ólíkum sjónarhornum og spurði mismunandi spurninga,“ útskýrir Elín.
Með því að leiða saman reynda kennara, fagfólk úr atvinnulífinu og nemendur með fjölbreyttan bakgrunn skapast tækifæri til að tengja tæknilega menntun við raunverulegar aðstæður í orkugeiranum.
Iceland School of Energy þakkar Jarðborunum fyrir góðar móttökur og fyrir að miðla þekkingu sinni og reynslu til nemendanna.
Dagsetning
Deila