Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
13. febrúar 2026

Kom á óvart hversu margir borðuðu hákarlinn

Þorrablót skiptinema fór fram síðastliðna helgi og heppnaðist vel. Marteinn Lundi Kjartansson var prímus mótor í skipulagningu en hann hefur verið mentor fyrir erlenda skiptinema frá vorinu 2023. Þorrablótið var haldið í samstarfi við Alþjóðasvið HR.

Marteinn Lundi Kjartansson var í sínu fínasta pússi á þorrablótinu.

Upphaflega skráði ég mig til að stíga út fyrir þægindarammann og efla félagslíf mitt. Ég sá þetta sem tækifæri til að kynnast nýju fólki og ólíkum menningarheimum. Síðan hef ég haldið áfram síðan því starfið er ótrúlega gefandi og ég mæli eindregið með því að gerast mentor.

Segir Marteinn Lundi og bætir við að hann hafi öðlast mikla reynslu í framkomu og samskiptum almennt í gegnum starfið. Í fyrstu hafi hann verið nokkuð feiminn í nýjum og stórum skóla á nýjum og mun stærri stað en mentorstarfið hafi ýtt sér út í að spjalla við fólk.

Það er dýrmæt upplifun að kynnast nýjum hefðum og sjá Ísland í gegnum augu nemenda sem eru að koma hingað í fyrsta sinn, það minnir mann á að meta umhverfið sitt. Ef ég væri nýr á ókunnugum stað væri ég mjög þakklátur fyrir móttökur eins og við veitum.

Þorramaturinn kom frá veisluþjónustu og voru smakkstærðir í boði frekar en full máltíð. Marteinn Lundi segir viðtökurnar hafa verið blendnar.

Flestir voru hrifnir af harðfiskinum, saltkjötinu og hangikjötinu en súrmaturinn var síður vinsæll. Það kom mér þó á óvart hversu margir gátu borðað hákarlinn.

Segir Marteinn Lundi en hann og Jenný Karen Á. Aðalsteinsdóttir, lögðu mikinn metnað í undirbúninginn og mættu m.a. bæði í þjóðbúningum á blótið.

Marteinn Lundi í hópi mentora sem sáu um undirbúning þorrablótsins. Á myndinni frá vinsti eru; Sasini Hansika Inga Amarajeewa, Marteinn Lundi Kjartansson, Arndís Ósk Einarsdóttir, María Rut Þórðardóttir, Viktor Árni Eiðsson, Anna Bavarsad, Jenný Karen Á. Aðalsteinsdóttir, Guilherme Baía Roque

Ég fékk minn lánaðan en Jenný á sinn eigin sem hún saumaði sjálf sem mér finnst aðdáunarvert! Við settum upp „smakkleik“ í stað hefðbundinna skemmtiatriða. Maturinn var númeraður á diskum og gestir áttu að giska á hvað þeir væru að borða út frá valmöguleikum. Leikurinn vakti mikla lukku og eitt lið náði meira að segja fullu húsi stiga. Við höfum fengið frábær viðbrögð og ég held að þetta hafi slegið í gegn, alveg eins og í fyrra.

Segir Marteinn Lundi að lokum.

13. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar