Nemendur söfnuðu nærri 700.000 krónum fyrir Píeta samtökin
Góðgerðarvika SFHR fór fram dagana 19.–28. janúar. Tókst nemendum að safna 699.000 krónum fyrir Píeta samtökin með því að standast ýmsar áskoranir.
Særún Björk Jónasdóttir, forseti SFHR, segir vikuna hafa tekist frábærlega og þau séu ótrúlega stolt af árangrinum. Öll nemendafélögin lögðu sitt af mörkum og segir Særún það hafa verið ótrúlegt að sjá hversu mikið hugmyndaflug og metnað nemendur lögðu í áskoranirnar.
Meðal þeirra var að nemendur gengu hringinn í Sólinni í ótal klukkutíma, einhverjir nemendur lituðu á sér hárið, fóru í brúnkusprey og hot body toning, tvær manneskjur voru handjárnaðar saman í sólarhring og gist var í kjallaranum í HR, svo fátt eitt sé nefnt. Þá lauk vikunni með því að Gunnar B. hljóp maraþon í kringum skólann og stukku margir inn og hlupu einn eða fleiri hringi með honum.
Við í SFHR erum ekkert smá ánægð með hvernig allt heppnaðist. Þar sem góðgerðavika hefur ekki verið haldin í nokkur ár var sérstaklega gaman að sjá hversu vel fólk tók í þetta og hversu mikill stuðningur og jákvæðni ríkti alla vikuna. Þetta sýnir svo vel hvað við getum gert saman og við hvetjum næstu stjórn svo sannarlega til að halda þessari hefð áfram.
Segir Særún um vel heppnaða Góðgerðarviku SFHR.
Dagsetning
Deila