Niðurstöður úr gæðamati fyrir HR: Öflug gæðamenning í öllum einingum og víðtækur og heildrænn stuðningur við nemendur
Stofnanúttekt Gæðamats íslenskra háskóla á Háskólanum í Reykjavík liggur nú fyrir. Úttektarnefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að Háskólinn í Reykjavík hefði staðist stofnanaúttekt. Stjórn Gæðamatsins fer engu að síður fram á að staða tveggja umbótaverkefna verði tekin út eftir tvö ár, en staðfestir skýrslu úttektarnefndarinnar að öðru leyti.

Í úttektinni segir að þegar kemur að námi og kennslu þá séu tengsl við atvinnulífið framúrskarandi og áhersla lögð á atvinnumöguleika að loknu námi og heildrænan stuðning við nemendur. Þegar kemur að rannsóknum og nýsköpun þá segir að umhverfið sé hvetjandi og stuðningsríkt og einnig að birtum greinum fari fjölgandi og fjármögnun rannsókna með utanaðkomandi styrkjum gangi vel.
Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor:
„Skýrsla úttektarnefndarinnar er bæði góð og hvetjandi. Varðandi niðurstöðu stjórnar Gæðamatsins á þörfinni á eftirfylgniúttekt á liðum 2 og 7 skal tekið fram að þau eru á meðal umbótaverkefna sem við í HR skilgreindum sjálf og verkefnin sem nefnd eru verða öll til bóta. Ég er stolt af starfsfólki HR, bæði hvað varðar vinnu við sjálfsmatsskýrslu, undirbúning heimsóknar úttektarnefndarinnar og vinnu við gæðamál.“
Í niðurstöðum úttektar koma fram tillögur að umbótaverkefnum sem helst snúa að nemendakerfi og heildstæðu gæðastjórnunarkerfi.
Skýrsluna má nálgast hér.
Dagsetning
Deila