Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. september 2026

Níu HR-ingar héldu í sumarnám til Stanford

Níu nemendur í Háskólanum í Reykjavík héldu til Bandaríkjanna í átta vikna langt sumarnám í Stanford háskóla í Kaliforníu nú í sumar. Þetta er annað sumarið í röð sem nemendur HR eru samþykktir í svokallað heiðursprógramm Stanford.

Í byrjun árs 2025 undirritaði HR samstarfssamning við Stanford háskóla um afslátt af skólagjöldum fyrir nemendur HR í sumarskóla sem kallast Stanford Summer International Honors Program. Sumarnámið í Stanford er á breiðu sviði og hægt er að velja úr fjölbreyttum námskeiðum. Nemendurnir níu eru:

  • Enok Atli Reykdal, BSc í hugbúnaðarverkfræði
  • Dagur Smári Sigvaldason, BSc í tölvunarfræði
  • Viktor Wardum, BSc í tölvunarfræði
  • Máni Sverrisson, BSc í hugbúnaðarverkfræði
  • Ari Tómas Hjálmarsson, BSc í hátækniverkfræði,
  • Birkir Hrannar Diego, BSc í fjármálaverkfræði
  • Stefán Gíslason, BSc í vélaverkfræði
  • Karitas Líf Ríkarðsdóttir, BSc í vélaverkfræði
  • Róbert Elí Árnason Birkis, BSc í hátækniverkfræði
Hluti af íslenska hópnum á Stanford háskólasvæðinu.

Máni keppir fyrir lið Stanford

Máni Sverrisson, einn af nemendunum níu sem fór til Stanford í sumar og nemandi í hugbúnaðarverkfræði í HR, mun keppa fyrir hönd Stanford háskólans í CISS 2026 með liðinu Stanford Applied Cyber.

„Ég fékk þann heiður að fá að keppa í úrslitum CISS 2026 með liði Stanford Applied Cyber, nemendafélagi við Stanford sem sérhæfir sig í tölvuöryggi. Þetta er tíunda árið sem keppnin er haldin og 70 lið víðs vegar að úr heiminum skráðu sig. Liðin þurftu fyrst að komast í gegnum 48 klukkustunda undankeppni í júlí til að vinna sér sæti í úrslitunum. Ég tók þátt í undankeppninni og við komumst í úrslit.

CISS er alþjóðleg keppni í öryggi iðnstýrikerfa, haldin af Singapore University of Technology and Design. Það sem gerir hana sérstaka er að liðin fá beinan aðgang að alvöru iðnaðarkerfum í fjórar klukkustundir, til dæmis EPIC, sem er raunverulegt rafdreifikerfi í Singapúr. Það sem við gerum þar hefur áþreifanlegar afleiðingar, ekki bara stig á skjá.

Þema ársins er „X Marks the Exploit", innblásið af Pirates of the Caribbean. Við erum í hlutverki sjóræningja sem eiga að stela gullmedalíu úr hafnarbænum Port Royal. Til þess þurfum við að brjótast inn í 5G-net hafnarinnar, slá út raforkuverið EPIC sem sér hvelfingunni fyrir rafmagni, ná svo aftur stjórn á Svörtu perlunni (skipinu) og eiga við kerfi þess svo það finnist ekki,“ segir Máni.

Stanford Applied Cyber mun keppa aðfaranótt 17. september frá kl. 01:00 til 05:00 að íslenskum tíma. Liðið er staðsett í Kaliforníu en Máni mun taka þátt frá heimili sínu í Reykjavík um miðja nótt.

Mikill heiður að stunda nám við þennan flotta háskóla

Karitas Líf Ríkarðsdóttir, einn af nemendunum níu sem fór til Stanford í sumar og nemandi í vélaverkfræði við HR, segir það hafa verið mikla upplifun að taka þátt í sumarnámi Stanford háskóla.

Karitas Líf Ríkarðsdóttir á háskólasvæði Stanford.

„Það er mikill heiður að fá að stunda nám við þennan flotta háskóla, hvað þá sem ungur nemandi frá Íslandi. Skólinn úti og skólastarfið er gríðarlega metnaðarfullt, en ásamt því er samfélagið sem myndast og fólkið sem maður kynnist á háskólasvæðinu svo ótrúlega dýrmætt. Maður vildi helst ekki fara þegar önninni lauk.

Þarna úti getur verið svo mikilvægt að standa upp úr og kynnast prófessorum upp á að fá möguleg meðmæli eða aukin tækifæri innan skólans og utan. Kennslan var líka yfirburðar góð þó að námsefnið hafi verið mjög krefjandi á köflum,“ segir Karitas Líf.

Hún er sannfærð um að sumarnámið í Stanford háskóla muni koma til með að opna dyrnar að auknum tækifærum í framtíðinni.

„Algjörlega, ekki bara það að hafa þetta á ferilskránni og í farteskinu út í atvinnulífið eða í framtíðar nám, þetta er líka aukin þekking. Reynslan sem maður öðlaðist mun hjálpa í verkefnum sem maður tekur að sér sama hvort það sé á vinnustað, í skóla eða almennt í lífinu. Maður er líka vel í stakk búin til þess að vinna í krefjandi aðstæðum,“ segir Karitas Líf að lokum.

Íslenski hópurinn ásamt erlendum samnemendum sínum.

8. september 2026
Nýjustu fréttirnar