Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
16. nóvember 2026

Ný bók um gæðastjórnun og sjálfbærni

Út er komin bókin Sustainable Quality – A Project Management Perspective eftir Helga Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, og Jaakko Kujala, prófessor við Háskólann í Oulu í Finnlandi. Það er alþjóðlega bókaútgáfan Routledge sem gefur bókina út. Bókin fjallar um kerfisbundna gæðastjórnun og hvernig skipulagsheildir geta innleitt og þróað starfshætti sem stuðla að betri árangri, stöðugum umbótum og sjálfbærni.

„Gæðastjórnun snýst um að byggja upp skipulagsheildir sem ná árangri, læra af reynslunni og geta stöðugt bætt starfsemi sína í síbreytilegu umhverfi,“ segir Helgi Þór, sem kennir um þessar mundir þriggja vikna gæðastjórnunarnámskeið í MSc í verkfræði.

Sustainable Quality – A Project Management Perspective byggir á rannsóknum og áratugalangri reynslu höfundanna af kennslu, rannsóknum og ráðgjöf á sviði stjórnunar. Hún er ætluð háskólanemendum, stjórnendum og öðrum sem vilja öðlast heildstæðan skilning á gæðastjórnun og hagnýtingu hennar í nútíma skipulagsheildum.

Sérstaða bókarinnar felst meðal annars í því að tengja gæðastjórnun við sjálfbærni og skoða innleiðingu og þróun stjórnunarkerfa út frá sjónarhorni verkefnastjórnunar.

16. nóvember 2026
Nýjustu fréttirnar