Samningur um byggingu 148 stúdentaíbúðir til viðbótar við HR
Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, og Gylfi Gíslason, forstjóri JÁ Verks, hafa undirritað verksamning um byggingu 148 stúdentaíbúða í HR. Verksamningurinn hljóðar upp á 4,2 milljarða króna og verða byggingarnar þrjár talsins á lóðum B og C á sameinaðri lóð við Nauthólsveg 83 (áður Nauthólsvegur 85 og 87). Áætlað er að heildarfjöldi stúdentaíbúða HR verði um 400 þegar allt verður fullbyggt á svæði Háskólans.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor:
„Þetta eru afar ánægjuleg tímamót fyrir Háskólann í Reykjavík. Með þessum samningi sjáum við fram á að bæta enn frekar aðstöðuna fyrir alla nemendur okkar í HR enda höfum við lagt áherslu að bjóða nemendum okkar upp á hagkvæmar leiguíbúðir. Það er gleðilegt að sjá þessa góðu viðbót, eða tæplega 150 íbúðir, bætast við þær ríflega 250 íbúðir sem þegar eru í notkun.”
Samningurinn hljóðar upp á áframhaldandi samstarf við JÁ Verk en félagið byggði einnig stúdentaíbúðir á lóðum A og B við Nauthólsveg 83, áður Nauthólsvegur 83 og 85. Kanon arkitektar sáu um hönnun bygginga og lóða líkt og með fyrri byggingar. Framkvæmdir hófust nú í febrúar og er áætlað að verkinu ljúki fyrir haustönn 2028.
Dagsetning
Deila