Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
21. maí 2026

Staðalímyndir komi ekki í veg fyrir drauma

Rúmlega 1150 stelpur og stálp voru samankomin í Háskólanum í Reykjavík þegar Stelpur, stálp og tækni, viðburður að erlendri fyrirmynd, fór fram miðvikudaginn 20. maí. Stelpur, stálp og tækni hefur fest sig í sessi sem einn stærsti viðburður Háskólans í Reykjavík ár hvert en viðurðurinn var fyrst haldinn árið 2014.

Markmiðið með viðburðinum er að kynna stelpur og stálp fyrir tæknistörfum og tæknimenntun þar sem hallað hefur á þessa hópa í tæknigeiranum almennt. Það hefur sýnt sig að þeir nemendur sem sækja viðburðinn hafa í auknum mæli sótt um nám í tæknigreinum við HR.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við JBT Marel og segir Þórhildur Þorkelsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar, hjá Marel að það sé mikilvægt að nemendur geti kynnt sér framtíðar tækifæri.

Okkur í JBT Marel finnst mikilvægt að krakkar fái tækifæri til að sjá hvaða möguleikar bíða að loknu námi svo þau finni neistann til að halda áfram. Það er alltaf gaman að sjá hvernig augu þeirra opnast við að kynnast því hvernig fyrirtæki virka og hvernig allskyns sérfræðingar vinna saman að spennandi markmiðum.

Segir Þórhildur en þátttakendur sóttu vinnustofur hjá nemendum, kennurum og fyrrverandi nemendum í HR. Þar fengu krakkarnir m.a. að spreyta sig í í hönnun tölvuleikja, róbótagerð, hugbúnaðargerð og mörgu fleiru. Þá tóku mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins á móti hópum t.a.m Marel, CCP games, Rarik, Orkuveitan, og Landsvirkjun.

Sköpunargleðin fékk að njóta sín í þessari vinnustofu sem tileinkuð var fræðslu um liti og ljós.

Í skemmtilegri vinnustofu á vegum tæknifræðideildar fengu hópar fræðslu um liti og ljós. Sigríður Heimisdóttir, kennari við deildina, segir liti margslungnari en við gerum okkur grein fyrir og var skoðað hvað litir eru og hvernig þeir hafa áhrif á okkur.

Við fræddum þær um ljós og mismunandi gerðir þess. Einnig ræddum við mikilvægi þess að nota rétt ljósmagn og hvernig það er reiknað út. Eftir fræðsluna þá gerði hver og ein sinn eigin lampa. IKEA gaf okkur pappaskerma sem þær útfærðu með mismunandi tegundum lita og mynstrum og svo prófuðu þær mismunandi sterka ljósgjafa til að sjá heildarútkomuna. Vinnustofan gekk ótrúlega vel og voru krakkarnir frábærir í virkni og sköpun. Öll máttu svo taka með sér sinn lampa að vinnustofu lokinni.

Segir Sigríður um vinnustofuna sem hún og Aldís Ingimarsdóttir, kennari við tæknifræðideild, héldu fyrir hópa af áhugasömum nemendum.

Pizza og góð stemning í Sólinni í hádeginu.

Í hádeginu gæddu þátttakendur sér síðan á pizzu, Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulífstengsla við HR, bauð hópinn velkominn og DJ Dóra Júlía sá um að halda uppi góðri stemningu í Sólinni.

Það er alltaf jafn ánægjulegt að taka á móti þessum krökkum á hverju ári. Tæknin er víða í samfélaginu og það var greinilegt að þessi fræðsla opnaði augun hjá mörgun. Ég heyrði það t.d. að í einum hóp, sem heimsótti heilbrigðistæknisetrið okkar, hafi allar sagst vilja fara í heilbrigðisverkfræði í framtíðinni að lokinni heimsókn. Við vonumst til að viðburður sem þessi verði til þess að stelpur og stálp láti staðalímyndir ekki í standa í vegi fyrir að elta drauma sína.

Segir Rakel Gunnarsdóttir, viðburðastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.

Framtíðin er björt og brosandi

Skipuleggjendur við Háskólann í Reykjavík hafa átt í góðu samstarfi við mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við skipulagningu Stelpur, stálp og tækni. Skapast hefur skemmtileg stemning á deginum sjálfum og ánægja ríkt, bæði meðal kennara, nemenda og aðila sem tekið hafa á móti hópum.

Í heimsókn í aðveitustöð Rarik í Hveragerði.

Þetta er frábært framtak hjá HR og ljóst að við munum taka þátt aftur. Það var gaman að upplifa hvað það er ótrúlega mikill kraftur í stelpunum sem heimsóttu okkur í aðveitustöðina í Hveragerði. Við sáum að framtíðin er björt og brosandi og vonumst til að einhver þeirra skili sér alla leið í vinnu til okkar í framtíðinni.

Segir Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar, hjá Rarik.

Við í HR þökkum öllum þátttakendum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum kærlega fyrir gott samstarf og hlökkum til að ári.

21. maí 2026
Nýjustu fréttirnar