Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
25. mars 2026

Tilmæli til HR-inga vegna veðurviðvörunar

Nú undir kvöld komu skilaboð frá almannavarnadeild þar sem fólk hefur verið beðið um að halda sig heim sé þess kostur. Þá eru foreldrar beðnir að halda börnum sínum heima ef hægt er og tilkynnt að röskun verði á skólastarfi á höfuðborgarsvæðinu á morgun vegna veðurs. Í ljósi þessara frétta er lagt til að öll kennsla í HR sem fara átti fram í fyrramálið og til hádegis, eða þar til veðurviðvaranir detta úr gildi, verði í formi fjarkennslu.

Við gerum ráð fyrir að húsið verði opið fyrir þau sem vilja koma og nýta sér aðstöðuna í skólanum en bendum ykkur á að fylgjast vel með leiðbeiningum morgundagsins í gegnum Canvas (nemendur), Orion (starfsfólk), með tölvupósti og á samfélagsmiðlum HR. Við ítrekum einnig tilmæli frá almannavarnardeildinni að fólk fylgist vel með veðurspám og fari ekki út í umferðina nema vera búin til þess.

Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan fimm í fyrramálið og appelsínugul upp úr sjö. Viðvaranir eiga að falla úr gildi eftir hádegi.

Við bendum einnig á vef Veðurstofunnar fyrir nánari upplýsingar um veður og viðvaranir.

25. mars 2026
Nýjustu fréttirnar