Tölvunarfræðideild HR á stærstu tölvuleikjasýningu heims
Tölvunarfræðinemar úr Háskólanum í Reykjavík héldu í ágúst sl. til Kölnar í Þýskalandi til þess að vera viðstaddir Gamescom, alþjóðlega tölvuleikjasýningu þar sem leikjafyrirtæki, þróunarteymi, nemendur og almenningur koma saman. Sýninguna sóttu 368.000 manns, sem er sú stærsta í heimi sinnar tegundar.
HR var á meðal þátttakenda í Raw Talent Booth, sameiginlegu sýningarsvæði fyrir nemendaleiki á Gamescom í ár. 11 nemendur HR kynntu þar leiki sem þeir gerðu í skólanum.
Auk þess að kynna leikina sína voru nemendurnir allir hluti af sjálfboðaliðateymi sem setti upp básinn og auglýsti viðburðinn og leikina. Á Raw Talent Booth voru kynnt yfir 90 leikjaverkefni frá 18 háskólum í fimm löndum, með þátttöku yfir 380 nemenda.

Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sérfræðingur við tölvunarfræðideild HR sem var með í för, segir það ómetanlegt tækifæri fyrir upprennandi leikjahönnuði að upplifa það að fá að sýna leikinn sinn á svona stórum viðburði.
„Þetta er hagnýt reynsla af leikjaprófun á stærri vettvangi, kynningu á leiknum sínum og samskiptum við gesti. Raw Talent skapaði sömuleiðis alþjóðleg sambönd, bæði fyrir nemendurna og kennara. Þarna myndaðist vettvangur fyrir mig sem kennara í leikjahönnun að kynnast kollegum. Kynntist ég til að mynda kennurum Nord University vel og við skoðuðum möguleika á samstarfi milli skólanna okkar,“ segir Steingerður Lóa.
Upplifunin rædd á sérstökum viðburði
Í síðustu viku héldu nemendurnir viðburðinn Let‘s Talk About Gamescom í samstarfi við Game Makers Iceland. Viðburðurinn fór fram í HR þar sem nemendurnir 11 ræddu um reynslu sína af því að hafa heimsótt stærstu tölvuleikjasýningu heims.

Ræddu þeir meðal annars um hvernig upplifun það hafi verið að fara í ferð til að kynna leiki sem voru gerðir í HR. Auk þess ræddu fulltrúar íslenska leikjafyrirtækisins Deadgroove Games, sem vinnur að þróun tölvuleiksins Replay, the Musical, um sína reynslu af því að vera lítill fiskur í heimsins stærstu tjörn.
Nemendurnir 11 í tölvunarfræði í HR sem fóru til Kölnar á Gamescom eru:
| Bernard Geir Línberg Ásgeirsson |
| Bjarki Már Aronsson |
| Frill Fönn Söebech |
| Gísli Jóhann Halldórsson |
| Haukur Gröndal Bjarnason |
| Kristján Orri Leifsson |
| Marteinn Logi Jóhannsson |
| Oliver Örn Chelbat Kaaber |
| Teitur Hrólfsson |
| Tryggvi Ólafsson |
| Þorvarður Helgi Bjarnason |
Dagsetning
Deila