Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
27. mars 2026

Vitinn í fyrsta sinn til Barcelona: Íslenskur lax sem úrvalsvara á spænskum markaði

Vitinn er hugmyndasamkeppni Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Háskólans í Reykjavík í samstarfi við Icelandair Cargo. Á hverju ári skrá nemendur sig til leiks í Vitanum og takast á við raunverulega áskorun tengda sjávarútveginum.

Áskorunin er skrifuð af Valdimar Sigurðssyni, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og er unnin í samstarfi við sjávarútvegs fyrirtæki landsins. Í ár var það Iceland Seafood sem lagði fram áskorunina sem sneri að því að markaðssetja íslenskan lax á spænskum markaði sem hágæða, fyrsta flokks vöru.

Sigurvegarar Vitans í ár voru þau Matthías Jens Ármann og Eiður Áki Arnarsson BSc nemendur í hagfræði og fjármálum og þær Brynhildur Lilja Kristjánsdóttir og Berglind Hrönn Úlfarsdóttir BA nemendur við lagadeild.

Verðlaunahafar til Barcelona

Í ár varð nýr áfangastaður fyrir valinu fyrir vinningsliðið en farið var í skipulagða fræðslu- og kynnisferð á vegum skólans til Barcelona. Fiskur og sjávarfang eru jú uppistaðan í spænskri matarmenningu og borgin því sérlega viðeigandi áfangastaður. Enda fengu nemendurnir í ferðinni einstakt tækifæri til að kynnast sjávarútvegi og þeirri menningu sem tíðkast innan fagsins á Spáni auk þess að stækka tengslanetið sitt og æfa sig enn frekar í framkomu.

Hópurinn heimsótti Iceland Seafood á Spáni, sóttu námskeið í Paellu matargerð, fengu skoðunarferð um einn stærsta matarmarkað Barcelona og fóru á Matvælasýninguna Alementaria. Einnig var farið í háskólaheimsókn í einn helsta samstarfskóla HR, UPF Barcelona.

Uppskáru mikið hrós

Fyrst á dagskrá var heimsókn til Iceland Seafood International Ibérica. Þar tóku þeir Freyr Sigurðsson, Snorri Eldjárn Hauksson og Magnús B. Jónsson á móti hópnum. Nemendurnir kynntu lausn sína fyrir þeim sem uppskar mikið hrós og einnig fengu þau góðar spurningar frá fagfólki í atvinnugreininni. Að því loknu var verksmiðja ISI skoðuð en þeirra helsta vara er saltfiskur og var fróðlegt að sjá ólíka verkun og pakkningar á fisknum.

Hópurinn frá HR í heimsókn hjá Iceland Seafood.


Nemendunum fannst heimsóknin til Iceland Seafood standa upp úr og þá helst sú reynsla að kynna verkefni sitt fyrir aðilum frá svo stóru fyrirtæki. Eftir heimsóknina var farið á veitingastað í nágrenninu þar sem smakkaður var allskyns fiskur við misgóðar undirtektir. Hópurinn var þó sammála um að saltfiskurinn frá Íslandi væri með eindæmum góður.

Frá verksmiðju til markaðar og beint á disk neytanda

Á markaðnum Mercat del Ninot hófst svo ferð inn í spænska matarmenningu þar sem matvæli, hefðir og upplifun fléttuðust saman. Hópurinn hitti þar Marina Coll sem veitti þeim innsýn í sögu markaðarins og mikilvægi fiskafurða í daglegu lífi Spánverja. Það sem þótti merkilegast þar var að í næstum hverjum bás voru einhver tengsl á milli starfsfólksins, systur, feðgar, frændur og frænkur sem höfðu verið viðloðandi markaðinn kynslóð eftir kynslóð.

Marina segir hópnum frá sögu matarmarkaða á Spáni.


Marina útskýrði sögu matarmarkaða á Spáni og þarna fékk hópurinn matarmenningu Spánverja beint í æð. Það var einstaklega skemmtilegt að fylgjast með eldri konu sem sérvaldi sér lax í matinn sem hún ætlaði svo að neyta nokkrum dögum seinna. Hún útskýrði fyrir hópnum að hún ætlaði að láta hann marinerast í salti og sykri nokkra daga áður sem er víst algeng eldurnaraðferð. Einnig stakk hún nokkrum kröbbum beint úr búrinu með í pokann sinn.

Mikilvægur lærdómur

Farið var á matvælasýninguna Alimentaria Barcelona þar sem liðið hitti fulltrúa frá Ahumados Domínguez sem er leiðandi framleiðandi reyktra laxafurða á Spáni. Þau fengu þar tækifæri að kynna verkefnið sitt fyrir þeim og eiga gott spjall. Um leið kynntist liðið alþjóðlegum matvælaiðnaði frá öllum hliðum og fengu gott smakk á laxi.


Nemendurnir eru sammála um það að þau hafi lært mikið um sjávarútveginn á því að taka þátt í Vitanum. Þau hafi fengið mjög góða endurgjöf á verkefnið og kynnst öllu ferlinu að baki framleiðslu á laxi og hve stór markaðurinn er í raun og veru. Þau mæla eindregið með því að taka þátt í Vitanum sem sé dýrmæt reynsla, bæði félagslega og námslega. Hér má bæta við að nemendurnir þekktust ekki öll vel fyrirfram en uppskáru góða vináttu í gegnum Vitann. Fór hópurinn m.a. á námskeið í að búa til Paellu, þjóðarrétt Spánverja.

Nemendur hlutu dýrmæta reynslu af því að kynna verkefnið sitt fyrir aðilum í sjávarútveginum ytra.
Stærra tengslanet og fleiri tækifæri

Ferðin endaði á heimsókn í Universitat Pompeu Fabra þar sem Dr. Josep Capdeferro tók á móti hópnum. Heimsóknin undirstrikaði mikilvægi alþjóðlegs samstarfs háskóla og m.a. tækifæra til skiptináms. Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá HR, og Rakel Gunnarsdóttir, viðburðastjóri, fóru með nemendum í ferðina. Þær segja ferðina hafa sýnt nemendunum að íslenskur fiskur sé ekki eingöngu útflutningsvara, heldur líka hluti af menningu, hefðum og daglegu lífi milljóna manna.

Það er mikil reynsla fólgin í því fyrir nemendur að fá að takast á við raunverulegar áskoranir og prófa hugmyndir sínar þar sem þær skipta máli. Það var bæði hvetjandi og ánægjulegt að sjá nemendur stíga inn í alþjóðlegt viðskiptaumhverfi af þessu tagi og koma heim með nýja sýn, aukinn skilning og innblástur.


Segja þær Hrafntinna og Rakel og vilja koma á framfæri þakklæti fyrir hönd HR til SFS, Icelandair Cargo, Iceland Seafood International og allra samstarfsaðila fyrir að gera þetta mögulegt. Slíkt samstarf byggi brýr milli náms og atvinnulífs og skapi raunveruleg tækifæri fyrir næstu kynslóð.

Við erum stoltar af liðinu Taktíkin og það verður spennandi að sjá hvað næsta viðfangsefni Vitans verður.


Segja þær Hrafntinna og Rakel að lokum.



27. mars 2026
Nýjustu fréttirnar