Reglur um skil á lokaverkefnum
Samþykkt í framkvæmdastjórn HR 20. desember 2016
- Nemendur í grunn-, meistara- og doktorsnámi í öllum deildum skólans skila einu
eintaki af lokaverkefni sínu á rafrænu formi (PDF) í varðveislusafnið Skemmuna
(www.skemman.is).
- Nemendur í doktorsnámi skila að auki prentuðum eintökum í samræmi við reglur
viðkomandi deildar, á þjónustuborð HR í Sólinni, fyrir kl. 16:00 á tilgreindri
skiladagsetningu [1].
- Öll lokaverkefni skulu vera opin til aflestrar á bókasafni HR og í Skemmunni í
samræmi við stefnu skólans um opinn aðgang sem samþykkt var þann 13.
nóvember 2014. Opinn aðgangur að lokaverkefni á bókasafni HR og í Skemmunni er
opinber birting í skilningi höfundalaga nr. 73/1972.
- Nemandi getur óskað eftir því að aðgangi að lokaverkefni sé lokað ef það inniheldur
upplýsingar sem krefjast þess að trúnaður ríki um. Þá er annars vegar átt við
trúnaðarupplýsingar, þ.e. viðkvæmar upplýsingar sem höfundi kann auk þess að
vera óheimilt að birta (persónuupplýsingar, viðskiptaupplýsingar þ.m.t. upplýsingar
sem samstarfsfyrirtæki óska eftir að leynt fari). Hins vegar er átt við verðmætar
upplýsingar, s.s. ef lokaverkefni inniheldur viðskiptahugmynd, upplýsingar um
og/eða lýsingar á vöru, hugmynd eða aðferð sem hægt er að nýta eða sækja um
einkaleyfi á.
- Nemandi sem óskar eftir því að aðgangi að lokaverkefni sínu sé lokað, verður að
skila inn beiðni um lokun lokaverkefnis á sérstöku eyðublaði (sjá eyðublað hér).
Beiðninni er skilað inn rafrænt á viðkomandi deild til samþykktar.
Um frágang lokaverkefna vísast til reglna viðkomandi deildar.
[1] Hér er átt við skiladag fyrir endanlegt lokaeintak eftir atvikum með leiðréttingum gerðum eftir vörn verkefnisins.