Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Loftslagsaðgerðir til framtíðar: Aðkoma stjórnvalda, þriðja geirans, löggjafa, almennings og fjölmiðla

16. mars, 12:00 - 13:45
Háskólinn í Reykjavík - Stofa V102
Skrá í dagatal

Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnun HR býður til málfundar og tveggja pallborðsumræða til að ræða loftslagsaðgerðir sem viðbragð við mögulegu hruni AMOC.

Í fyrra pallborðinu verður farið yfir þróun mála hjá stjórnvöldum og afstöðu hagsmunasamtaka, þ.e. Landverndar, Ungra umhverfissinna og Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands.

Í seinna pallborðinu verður fjallað um þætti sem styðja við og vinna gegn loftslagsverkfræði, réttaróvissu í þessum málaflokki, almenningsálit og áhrif fjölmiðla.

Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 16. mars klukkan 12:00-13:45 í stofu V102. Boðið verður upp á kaffi og léttan hádegisverð.

Frummælendur:
Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Bára Alexandersdóttir, doktorsnemi við lagadeild HR
Cody Skahan, doktorsnemi við mannfræðideild Oxford-háskóla

Þátttakendur í pallborði:
Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Landvernd
Laura Sólveig Lefort Scheefer, Ungir umhverfissinnar
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Varða
Kjartan Kjartansson, Sýn
Lilja Ólafsdóttir, Umhverfis- og orkustofnun

Fundarstjórar:
Páll Gunnarsson, Reykjavik Institute
Snjólaug Árnadóttir, Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnun HR

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst