frumgreina3

Um frumgreinanám

Frumgreinanám er góður valkostur fyrir fólk úr atvinnulífinu sem þarf frekari undirbúning til áframhaldandi náms á háskólastigi.

Frumgreinanám hentar líka stúdentum sem þurfa að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum.

Frumgreinanám Háskólans í Reykjavík byggir á tæplega 50 ára gamalli hefð. Allir áfangar eru kenndir bæði á haust- og vorönn. 


Fyrir hverja?

Þá sem lokið hafa skilgreindu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi úr iðn-, verkmennta-, fjölbrautaskóla, eða sambærilegu námi. Ath.: Ekki er gerð krafa um sveinspróf.

Nemendur sem hafa umtalsverða starfsreynslu geta einnig sótt um.

Nemendur sem hafa lokið stúdentsprófi en hafa ekki nægilegan fjölda eininga í stærðfræði og eðlisfræði geta bætt við sig þeim einingum sem upp á vantar.


Skipulag náms

Lengd frumgreinanáms HR fer eftir undirbúningi nýnema. Fullt nám er 35 f-einingar (fein) á 1. önn og 40 f-eining (fein) á 2., 3. og 4. önn.  Fullt nám á 2., 3. og 4. önn er  lánshæft hjá LÍN samkvæmt úthlutunarreglum LÍN, kafli 1.2.2. um sérnám á Íslandi.

Námið fer fram í dagskóla, sjá staðarnám, og í fjarnámi, sjá fjarnám.

Umsagnir frumgreinanemenda

Erna Dís

Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið var að sækja um frumgreinanám HR. Virkilega skemmtilegur tími með frábærum samnemendum.

Lesa meira
 

Allar umsagnir