Frammistöðu-greining í íþróttum
Hvað læri ég?
Örnám í frammistöðugreiningu er á meistarastigi og er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Nemendur fá tækifæri til að vinna verkefni í öllum námskeiðum sem tengjast þeirra áhugasviði og rík áhersla er á að tengja rannsóknir við hagnýtingu á vettvangi. Námið er rannsóknatengt og fræðilegt.
Nemendur taka þrjú 10 eininga námskeið sem fjalla á einn eða annan hátt um frammistöðugreiningu sem verður sífellt mikilvægari þáttur í íþróttunum. Nemendur læra að greina frammistöðu með myndbandagreiningaforritum og íþróttagreiningartækjum (t.d. GPS vesti). Einnig er nemendum kennt að gera forspá líkön með gagnavinnsluforritum eins og R og Matlab. Þetta er nám fyrir öll sem hafa áhuga á að hagnýta tækni og gagnavísindi til þess bæta frammistöðu íþróttafólks.
Námskeiðin sem nemendur taka:
- Frammistöðugreining í þjálfun
- Greining íþrótta
- Rannsóknir í frammistöðugreiningu
Helstu upplýsingar um námið
- Hvenær byrjar námið? Hægt er að hefja nám að hausti eða vori.
- Hvernig er skipulagið? Kennt í lotum, fimm vikur + eina vika í verkefnavinnu. Að öllu jöfnu er kennt þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag frá kl. 12.40. – 15.10.
- Hvað kostar námið? 317.000 kr.

Í meistaranáminu gefst tækifæri til að vinna sjálfstætt að stóru verkefni tengdu eigin áhugasviði.
guðrún þórbjörg sturlaugsdóttir msc í íþróttavísindum og þjálfun 2020 og med í heilsuþjálfun og kennslu 2022
Hvernig læri ég?
Flest námskeið eru kennd í sex vikna lotum.
Framúrskarandi fræðimenn
Professor Peter O'Donoghue heldur utan um námið en hann er einn af fremstu vísindamönnum í heiminum í frammistöðugreiningu. Hann er þekktur fyrir störf sín, rannsóknir og kennslu á sviði frammistöðugreiningar, en margir fyrrverandi nemendur hans hafa náð miklum árangri í íþróttaheiminum. Til dæmis er einn þeirra yfirmaður greiningardeildar hjá enska knattspyrnusambandinu.
Ný þekking
Með því að búa til nýja þekkingu á sínu áhugasviði öðlast nemendur ákveðna sérfræðiþekkingu og sérhæfingu. Þeim standa ýmsir möguleikar til boða til að kafa dýpra ofan í spurningar sem þeir myndu vilja fá svör við. Nemendur hafa til dæmis fundið svör við spurningum á borð við:
- „Af hverju eru gæði norska kvennalandsliðsins í handknattleik svona mikil?“
- „Skiptir fyrsta markið í Pepsi-deildinni mestu máli?“
- „Skipta fráköst meira máli í úrslitakeppninni í körfubolta?“
Örnám í frammistöðugreiningu er skemmtilegt og áhugavert nám sem ég mæli hiklaust með. Í náminu öðlaðist ég dýpri skilning á frammistöðugreiningu og hvað það felst mikið í hverri og einni greiningu. Það sem mér fannst standa upp úr var hvað kennslan var þægileg og persónuleg og kennarar voru alltaf tilbúnir til þess að aðstoða.
Birgitta Hallgrímsdóttir, íþróttafræðingur, með BSc í íþróttafræði.
Ertu með spurningar um námið?
Að námi loknu
Margvísleg atvinnutækifæri bíða þeirra sem ljúka meistaranámi í íþróttafræði, svo sem við stjórnun innan íþróttahreyfingarinnar og þjálfun. Nemendur með MSc-gráðu í íþróttavísindum starfa í dag sem yfirþjálfarar íþróttafélaga, verkefnastjórar afreksíþróttasviðs, íþróttafræðingar á geðsviði, afreksþjálfarar og einkaþjálfarar svo fátt eitt sé nefnt.
Þekking að námi loknu
Við útskrift eiga nemendur m.a. að hafa þekkingu á hugmyndafræði þjálfunar og áhrifaþáttum á líkamlega og andlega heilsu íþróttamanna og kunna skil á fræðilegum grunni í aðferðafræði og helstu hugtökum og kenningum í íþróttanæringafræði.
Út í atvinnulífið
Margvísleg atvinnutækifæri bíða þeirra sem ljúka meistaranámi í íþróttafræði. Hér eru nokkrir möguleikar:
- Þjálfun
- Yfirþjálfarar íþróttafélaga
- Verkefnastjórar afreksíþróttasviðs
- Afreks- og styrktarþjálfarar
- Einkaþjálfarar
- Stjórnun íþróttafélaga
- Doktorsnám
Skipulag náms
Námið er eins árs, 30 ECTS nám.
Þriggja vikna námskeið
Afrekshópur
Sveigjanleiki í námi
Nemendur sem eru valdir í afrekshóp geta stillt námshraða sinn eftir álagi í íþróttum. Þeir geta þannig valið fjölda eininga sem þeir ljúka á ári með meiri sveigjanleika en aðrir nemendur. Meðlimir í afreksíþróttahópi geta fengið aðlögun á kennsluáætlun í öllum fögum, sem byggir á æfinga- og keppnisáætlun (sjá betur hér fyrir neðan í kafla um skilyrði).
Styrkir
Allt að þremur einstaklingum úr hópi afreksíþróttafólks er veittur styrkur fyrir skólagjöldum á hverri önn.
Mælingar og ráðgjöf
Einstaklingum í afrekshópi bjóðast nákvæmar grunnmælingar á líkamlegu og sálrænu ástandi sínu tvisvar sinnum á skólaárinu í samvinnu við þjálfara, og ráðleggingar um æfingaáætlun.
Skilyrði
Íþróttamaðurinn þarf:
- Að æfa og keppa reglulega á efsta stigi í sinni íþróttagrein.
- Að geta lagt fram æfinga- og keppnisáætlun, fjórum vikum fyrir byrjun hverrar annar, sem nær yfir alla önnina. Áætlunin skal vera staðfest af þjálfara eða sérsambandi.
- Að fylgja einstaklingsmiðaðri námsframvindu samkvæmt fyrirfram ákveðinni áætlun.
- Að fara í einu og öllu eftir lyfjareglum ÍSÍ. Ef styrkþegi gerist brotlegur við þær reglur missir hann styrk sinn umsvifalaust og þarf að endurgreiða þann styrk sem hann hefur áður fengið frá HR.
- Að vera tilbúinn að taka þátt í kynningarstarfi á vegum íþróttafræðisviðs HR.
- Að fylgja náms- og prófareglum HR í einu og öllu.
Gjaldgengar greinar
Íþróttafólk sem stundar íþróttir innan vébanda ÍSÍ sem og íþróttir utan ÍSÍ eins og til dæmis MMA, Crossfit og aflraunir er gjaldgengt í afrekshóp íþróttanema HR.
Umsóknir
Skila þarf inn umsóknum viku eftir að önn hefst.
Það sem þarf að koma fram í umsókn er að minnsta kosti eftirfarandi:
Lýsing á helstu afrekum síðastliðna 12 mánuði. Þar þarf krækjur (linka) á hvar hægt er að sannreyna gefnar upplýsingar (heimslistar, innlendar afrekssíður, úrslitasíður, blaðagreinar, mótadagskrá og svo framvegis).
- Æfinga- og keppnisáætlun næstu fjóra mánuði
- Markmið með æfingum á næstu misserum
- Staðfestur námsárangur, annar en innan HR
Valferlið
Þriggja manna valnefnd fer yfir allar umsóknir og ákvarðar hvort umsækjandi uppfylli viðmið fyrir afrekshóp. Allir þeir sem uppfylla viðmið afrekshópsins komast í hann. Nefndin velur svo allt að þrjá einstaklinga úr hópi þeirra sem komast í afrekshópinn sem fá skólagjöldin niðurfelld. Við val inn í hópinn og mögulegar styrkveitingar hefur nefndin eftirfarandi viðmiðið í huga.
- Staða á heimslistum
- Fjöldi alþjóðlegra verkefna
- Landsliðssæti
- Staða á afrekslistum innanlands
- Námsárangur
- Fyrirmynd/ímynd
- Gæði umsóknar
Upplýsingar og umsóknir
Vinsamlegast sendið fyrirspurninir og umsóknir til verkefnastjóra náms.
Kennarar
Vísindamenn og sérfræðingar
Nemendur í íþróttafræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Aðstaða
Kennsla fer fram á netinu, í háskólabyggingu HR og á líkamsræktarstöð. Þá hefur íþróttafræðideild til umráða glæsilega aðstöðu til kennslu og rannsókna. Þar er m.a. að finna:
- Hlaupabretti, róðrarvél og Wingate hjól og Atom X Wattbike til að meta úthald
- Tæki til að mæla hámarkssúrefnisupptöku og mjólkursýruframleiðslu
- Lyftingarekka, stangir, lóðaplötur, handlóð, ketilbjöllur, TRX bönd, teygjur og æfingabolta
- Tanita mælitæki til að mæla líkamssamsetningu, fitufrían massa, hlutfall fitumassa og grunn orkuþörf
- Ýmiskonar mælitæki til að nota á vettvangi, s.s tímahlið, stökkmottur, gripstyrktarmæli, FMS hreyfifærni próf
- Átaksmæli frá Kinvent
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala
Af hverju íþróttafræði í HR?
- Öflugt verknám
- Möguleg sérhæfing miðað við áhugasvið
- Framúrskarandi aðstaða
- Gott aðgengi að kennurum
- Samheldinn hópur nemenda
- Góð blanda af verklegu og bóklegu námi












