Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Vottuð stjórnunarkerfi

Vottuð stjórnunarkerfi í Háskólanum í Reykjavík

Vottun stjórnunarkerfis er formleg staðfesting óháðs þriðja aðila á því að starfsemi uppfylli kröfur viðurkennds staðals. Vottunin byggir á reglulegum ytri úttektum og styður við markmið Háskólans í Reykjavík um sanngjarnt og öruggt starfsumhverfi.

Jafnlaunavottun – ÍST 85

HR var fyrstur íslenskra háskóla til að hljóta jafnlaunavottun, vorið 2019. Vottunin staðfestir að launaákvarðanir byggist á málefnalegum forsendum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Ytri úttekt fer fram árlega í mars.

Upplýsingaöryggi – ISO/IEC 27001:2022

Í júlí 2026 hlaut Háskólinn í Reykjavík vottun samkvæmt ISO/IEC 27001:2022, alþjóðlegum staðli um stjórnun upplýsingaöryggis. Vottunin nær til allrar upplýsingatækniþjónustu, kerfa, innviða, aðstöðu, upplýsinga og ferla sem upplýsingatæknisvið HR ber ábyrgð á. Hún tekur einnig til starfsfólks, birgja og þriðju aðila sem nota eða tengjast þeim upplýsingakerfum. Vottunin staðfestir að unnið sé kerfisbundið að því að greina og stýra áhættu, vernda trúnað, heilleika og tiltækileika upplýsinga og bæta ferla stöðugt.

StaðallISO/IEC 27001:2022
UmfangUpplýsingatækniþjónusta og -kerfi á ábyrgð upplýsingatæknisviðs
VottunaraðiliBSI
Skírteini nr.IS 837775
Gildistími10.7.2026–9.7.2029
ÁbyrgðForstöðumaður upplýsingatæknisviðs
Fara efst