Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
Tölvunarfræðideild

Inda – gagnvirk -
list og hönnun

Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BA
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Nei

Opið fyrir umsóknir

24. febrúar 2026

Umsóknarfrestur til og með

13. apríl 2026

Umsóknum svarað

Maí / júní 2026

Hvað læri ég?

Námið sem er til þriggja ára er 180 einingar og samanstendur af fræðilegum námskeiðum, tæknilegri þjálfun og verklegum vinnustofum. Það byggir á þverfaglegri nálgun þar sem samstarf lista-, vísinda- og tæknigreina skapar fjölbreytt lærdómsumhverfi. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, á verkstæðum og í sameiginlegu vinnurými nemenda, bæði í húsnæði Listaháskólans og Háskólans í Reykjavík.

Hvernig læri ég?

Námið er nemendamiðað og gefur hverjum og einum svigrúm til að þróa eigin áherslur. Hlutverk kennara er að leiðbeina um skapandi ferli, tæknileg verkfæri og gagnrýna hugsun sem styður þekkingarleit nemandans. Áhersla er lögð á samtal, samvinnu og greiningu verka í samhengi. Námsmat eru skriflegar umsagnir og einkunnagjöf.

Fyrsta ár – undirstöðuatriði

Á fyrsta ári er lögð áhersla á að byggja upp grunnþekkingu og færni. Nemendur kynnast skapandi aðferðum, forritun, ýmis konar tækni og verkfærum til gagnvirkrar miðlunar. Þeir kynnast einnig grunnvinnu í hönnunarferlum, rannsóknum og aðferðum. Nemendur vinna saman í teymum að tilgreindum æfingum og verkefnum í verklegum skyldunámskeiðum. Verklegir áfangar byggja á röð verkefna og æfinga sem verða meira krefjandi eftir því sem á líður. Námið fer fram í heimastofu og sækja nemendur þar ýmis námskeið, gera tilraunir og vinna að því að byggja upp samfélag í gegnum samvinnu.

Annað ár – Sérhæfing í gegnum samvinnu

Á öðru ári verður sérhæfing meiri og nemendur kafa dýpra í aðferðir og möguleika stafrænnar, tæknistuddrar og gagnvirkrar sköpunar. Nemendur geta einnig sótt valnámskeið í HR og LHÍ eftir áhugasviði og áherslum í námi. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum sem og að sameiginlegu verki sem sýnt er í lok annar. Einnig geta nemendur sótt um skiptinám og starfsnám.

Þriðja ár – Sérhæfing og framtíðarsýn

Megnið af þriðja námsári einbeita nemendur sér að sínu sérsviði, samþætta verkefni og valgreinar og þróa eigin lokaverkefni. Einnig vinna nemendur saman að sameiginlegu verki. Nemendum gefst tækifæri á að vinna lokaverkefni sitt í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í greininni.

Ertu með spurningar um námið?

Að námi loknu

Að loknu námi hafa nemendur öðlast færni til að vinna að sjálfstætt og í teymum að fjölbreyttum verkefnum á sviði listtölvunar, gagnvirkrar miðlunar og nýsköpunar.

Námið veitir traustan grunn til áframhaldandi sérhæfingar og undirbýr nemendur vel fyrir framhaldsnám á meistarastigi innan skapandi greina, hönnunar og tækni.

Skipulag náms

Inda - gagnvirk list og hönnun, BA, 180 einingar 
  • Heiti prófgráðu eða annarra námsloka: BA
  • Einingar við útskrift: 180 einingar
  • Aðalnámsgrein til lokaprófs: Inda - gagnvirk list og hönnun
  • Langt númer: 00022020266
  • Tungumál sem kennsla/próf fara fram á: Íslenska og í sumum tilfellum enska
  • Námsstig: Grunnnám. ISQF 5.2 / EQF 6 / QF-EHEA fyrsta háskólaþrep.
  • Skilgreind lengd námsleiðarinnar: Sex. annir, 90 vikur af kennslustundum.
  • Deild: Hönnunardeild LHI og tölvunarfræðideild HR

Aðferðir, gildi og leiðarstef Inda

LEIÐARSTEF

Í náminu er LEIKGLEÐI viðhorf í róttæku skapandi ferli. Leikgleði er sífellt mikilvægari þáttur í starfi og rannsóknum. Hún eykur í senn forvitni, áhuga og einbeitingu við nám, eflir frjálsræði, þor og teymisvinnu. Leikgleði leiðir af sér róttækt hugarfar, gagnrýna sýn á hefðbundin kerfi og stuðlar að óhefðbundinni nálgun og tilraunum sem örva listrænar aðferðir.

UMHYGGJA er varðar siðferðileg gildi og menningu. Aðferðarfræði Indu byggir á umhyggju. Verkefni eru unnin af ábyrgð og einkennast af skýrum skilningi á siðferðilegum gildum og álitamálum í víðu samhengi.

SAMVINNA á jafningjagrundvelli, í námi og starfi. Góð samvinna skapar tækifæri til að koma auga á nýjar leiðir til að miðla hugsunum og hugmyndum. Teymisvinna er gegnumgangandi í Indu þar sem tekist er á við verkefni og viðfangsefni með gagnvirkum aðferðum og upplifunum.

LIPURРeflir þor iðkenda til að fara óhefðbundnar leiðir. Í framtíðinni munu tölvur og önnur tækni vera órjúfanlegur partur af öllum sviðum samfélagsins. Brautskráðir nemendur Indu munu brúa bil tækni og lista, hafa áræðni og dug til að þvera mörk milli ólíkra greina og gerast leiðtogar á sínu sviði.

Sér leiðbeiningar fyrir hönnunardeild Listaháskólans

Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BA
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Nei

Aðstaða

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, á verkstæðum, bæði í húsnæði Listaháskólans og Háskólans í Reykjavík. Heimastofan er náms- og vinnurými nemenda. Þar deila þeir þekkingu, vinna saman að        verkefnum og nýta rýmið í ýmsum tilgangi. Þar gefst nemendum kostur á að kynnast fjölbreyttum búnaði og aðferðum til að miðla, smíða og þróa stafræn verk of verkfæri til gagnvirkar miðlunar.

Svartholið

Þeir nemendur sem gera verkefni og stunda rannsóknir með vísindamönnum Gervigreindarseturs HR, CADIA, hafa afnot af aðstöðu setursins fyrir tilraunir og sérstaka þróun í margmiðlunartilraunaherbergi sem kallað er Svartholið. 

Þar eru margskonar tæki sem nýta má í samskiptum fólks og tölva, eins og sýndarveruleikabúnaður (Oculus Rift og HTC Vive), risaskjár (3m x 2m), tölvusjón (Kinect), stefnuvirkir hljóðnemar, tölvustýrð LED-lýsing, hátalarakerfi og hljóðblandari svo að fátt eitt sé nefnt. 

LHÍ

Í LHÍ hafa nemendur aðgang að fjölbreyttum verkstæðum, stúdíóum og vinnurýmum sem eru sérhönnuð fyrir skapandi vinnu—hvort sem unnið er með efnislega miðla, hljóð, mynd, hreyfingu eða stafræna tækni.

Af hverju tölvunarfræði í HR?

  • Raunhæf verkefni
  • Sterk tengsl við atvinnulífið
  • Kennt er í 12 vikur og svo taka við þriggja vikna hagnýt verkefni
  • Lokaverkefni með rannsóknaáherslu/rannsóknahluta í samstarfi við fyrirtæki eða vísindamenn HR
Fara efst