Fjármálaverkfræði
Hvað læri ég?
Meistaranám í fjármálaverkfræði er framhald grunnnáms í fjármálaverkfræði.
Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í fjármálaverkfræði. Hafi nemandi BSc gráðu í annari undirgrein verkfræði getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi. Ef BSc gráða er ekki í verkfræði getur þurft að bæta töluverðu við úr grunnnámi til að uppfylla skilyrði. Í slíkum tilvikum er ætlast til að nemandi klári þessi námskeið á fyrsta námsári sínu.
Verkfræði er í heildina fimm ára nám. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.
Verkfræðilegar aðferðir í fjármálum
Fjármálaverkfræði er þverfagleg grein sem samþættir fjármálafræði við verkfræðilegar aðferðir, stærðfræðileg líkön, tölfræði, aðgerðagreiningu og hagnýta tölvunarfræði. Nám í fjármálaverkfræði hentar þeim sem hafa áhuga á að takast á við áhættustýringu, afleiðuviðskipti eða fjárstýringu, hvort sem er í markaðs– eða fyrirtækjageiranum. Verkfræðinám samanstendur af þriggja ára BSc-námi og tveggja ára MSc-námi.
Þekking á fjármálafræði og kunnátta í raunvísindum
Í náminu takast nemendur á við krefjandi og raunhæf verkefni þar sem þeir læra að beita stærðfræði og tölvunarfræðilegum aðferðum. Auk góðrar þekkingar á fjármálafræðum þurfa nemendur að hafa skilning á margvíslegum eiginleikum mismunandi kerfa og ferla. Í þessu sambandi er góð undirstöðuþekking á sviði almennrar verkfræði og raunvísinda, aðallega eðlisfræði, mjög mikilvæg.
Lifandi nám
Nemendur í fjármálaverkfræði hljóta fræðilega undirstöðu og þurfa að nota þá þekkingu til að leysa raunveruleg verkefni af ýmsum toga. Með því að glíma við raunhæf verkefni og finna lausnir við vandamálum hljóta nemendur góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu.
Hver er munurinn á fjármálaverkfræði og viðskiptafræði?
Í samanburði við viðskiptafræðinga nota fjármálaverkfræðingar tæknilegri og stærðfræðilegri aðferðir við úrlausn verkefna sem oft felst í því að skrifa reiknirit og tölvuforrit til að greina, magnsetja og stýra áhættu mismunandi fjárfestingartækifæra. Flest fjármála – og fjárfestingafyrirtæki gera sífellt meiri kröfur um góða kunnáttu í stærðfræði og tölvunarfræði, sem einkennir menntun fjármálaverkfræðinga.
Hvernig læri ég?
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknatengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Meistaraverkefni
Valnámskeið eru hugsuð sem undirbúningur að rannsóknarverkefni nemenda og ætluð til að auka skilning á tilteknu viðfangsefni. Meistaraverkefni er 30 einingar og er unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.
Meistaranemar geta sótt um að taka starfsnám á vorönn. Starfsnámið getur verið allt að 12 ECTS.
Fjölbreytt viðfangsefni
Markmið með starfsnámi er að auka þekkingu nemenda á því sviði sem þeir stunda nám á og búa þá undir störf að námi loknu. Verkfræðideild gengur úr skugga um að nemendur sem fara í starfsnám vinni verkefni sem eru krefjandi og á þeirra áhugasviði.
Starfsnámið hefur mælst mjög vel fyrir hjá nemendum og mörg meistaraverkefni hafa orðið til út frá verkefnum í starfsnámi.
Hér eru dæmi um þrjú verkefni nemenda í fjármálaverkfræði við HR.
Skyldunámskeið fyrir alla:
Gagnanám og vitvélar
Eitt skyldunámskeið er fyrir alla meistaranema í verkfræði, sama á hvaða námsleið þeir eru: Gagnanám og vitvélar (e. data mining and machine learning). Þar eru viðfangsefnin meðal annarra tauganet, ákvarðanatré og mynsturgreining.
Það er mat verkfræðideildar HR að kunnátta á þessu sviði sé nauðsynleg fyrir verkfræðinga dagsins í dag og ekki síst verkfræðinga framtíðarinnar.
Aðferðarfræði rannsókna
Samfélagið þarfnast fólks sem getur hugsað gagnrýnt, greint flóknar aðstæður og miðlað niðurstöðum sínum á áhrifaríkan hátt. Þetta getur falið í sér mörg verkefni, þar á meðal að leita að og meta gildi vísindarita og annars konar skjala.
Aðferðafræði rannsókna undirbýr nemendur fyrir að takast á við upplýsingaöflun, greiningu og skýrslugerð sem krafist er fyrir öll önnur námskeið.
Skiptinám
Að læra við háskóla í öðru landi er ævintýri, getur víkkað sjóndeildarhringinn og jafnvel staðfest fyrir nemendum hverju þeir vilja einbeita sér að í sínu starfi eftir útskrift. Nemendur í MSc námi geta sótt um skiptinám í eina eða tvær annir en alþjóðaskrifstofan veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Aðstoðarkennsla
Aðstoðarkennsla er auglýst sérstaklega og geta nemendur í MSc námi eða á 3. ári í BSc námi sótt um. Ýmist er um að ræða kennslu í dæmatímum ásamt yfirferð dæma, yfirferð heimaverkefna eingöngu eða aðstoð við verklegar æfingar. Nemendur sem hafa sýnt góðan árangur í námi og hafa áhuga á að spreyta sig við aðstoðarkennslu eru hvattir til þess að sækja um. Nánari upplýsingar hjá skrifstofu verkfræðideildar á vfd@ru.is
Að námi loknu
Hluti námsins er að bjóða nemendum hagnýta reynslu við lausn raunhæfra verkefna í fjármálum. Að loknu námi eiga nemendur að geta nýtt lausnamiðaðar verkfræðilegar- og magnbundnar aðferðir, ásamt heilbrigðri skynsemi, til að þróa hagkvæmar nýjar fjármálalausnir. Þessar lausnir geta jafnvel breytt því hvernig neytendur og fyrirtæki hegða sér við mat á fjármálalegri áhættu.
Starfsvettvangur
Fjárfestingabankar, vogunarsjóðir, lífeyris – og fjárfestingarsjóðir eru dæmi um algenga vinnustaði fjármálaverkfræðinga. Eins vinna fjármálaverkfræðingar iðulega að fjárhagslegri og rekstrarlegri skipulagningu og endurskipulagningu fyrirtækja á ýmsum sviðum atvinnulífsins, svo sem í hátækni, nýsköpun, sjávarútvegi og í fjármálageiranum. Greining á samruna og yfirtöku fyrirtækja er einnig algengt verkefni fjármálaverkfræðinga.
Starfsréttindi
Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc námi. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Skipulag náms
Til að öðlast starfsréttindi sem verkfræðingur þarf að BSc-námi loknu að ljúka tveggja ára MSc-námi.
Sérhæfing og einstaklingsmiðað nám
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Meistaraverkefni
Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 30 einingar, unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.
Skiptinám og starfsnám
Nemendur geta sótt um starfsnám (12 einingar) á vorönn. Nemendur geta sótt um skiptinám á haust- eða vorönn.
Skilyrt námskeið
Nemandi í MSc fjármálaverkfræði skal ljúka a.m.k. þremur af eftirtöldum skilyrtum valnámskeiðum. Önnur valnámskeið geta verið í verkfræði eða tengdum greinum, eða úr öðrum deildum, í samráði við leiðbeinanda og að uppfylltum reglum um meistaranám við verkfræðideild HR.
* Ekki má taka bæði V-784-REK5 og I-707-VGBI vegna skörunar á milli námskeiða
Ertu með spurningar um námið?
Aðstaða
Þjónusta og góður aðbúnaður
Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR í Nauthólsvík. Þar er einnig aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er jafnframt Háskólabúðin sem selur helstu nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Þó nokkuð er um að kennarar við deildina komi úr fjármála- og bankageiranum og byggja þeir þá á hagnýtri reynslu sinni úr atvinnulífinu. Samtvinnun þessa við sterkan fræðilegan grundvöll námsins undirbýr nemendur einstaklega vel til að takast á við fjármálatengd verkefni fyrirtækja, fjármálastofnana og fjárfestingarsjóða, svo sem lífeyrissjóða.
Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Af hverju meistaranám í verkfræði í HR?
- Góður aðgangur að framúrskarandi kennurum og vísindamönnum.
- Virk tengsl við atvinnulífið.
- Meistaraverkefni oft unnin í samstarfi við fyrirtæki og jafnvel hægt að fá styrki til að vinna þau.
- Öflugt starfsnám sem getur verið allt að 12 ECTS.
- Hægt að fara í skiptinám
- Háskólinn í Reykjavík er meðal bestu smærri háskóla heims samkvæmt lista Times Higher Education.
- Allt nám fer fram í Háskólanum í Reykjavík