Heilbrigðis-verkfræði
Hvað læri ég?
Meistaranám í heilbrigðisverkfræði er framhald BSc-náms í heilbrigðisverkfræði.
Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í heilbrigðisverkfræði. Hafi nemandi BSc gráðu í annari undirgrein verkfræði getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi.
Námið undirbýr verðandi verkfræðinga fyrir framsækin störf við að þróa ný tæki og aðferðir við greiningu og meðferð sjúkdóma og beita verkfræðilegum aðferðum í líffræði og læknisfræði. Meðal annars er fengist við heilarafrit, gervilíffæri, greinda gervifætur, tölvusneiðmyndir, geislameðferð og stærðfræðileg líkön.
Í náminu sameinast ólíkar greinar eins og stærðfræði og eðlisfræði við lífeðlisfræði, allt í þeim tilgangi að leysa vandamál vegna veikinda og slysa. Nám í heilbrigðisverkfræði samanstendur af þriggja ára BSc-námi og tveggja ára MSc-námi.
Lifandi nám
Nemendur í heilbrigðisverkfræði hljóta fræðilega undirstöðu og þurfa að nota þá þekkingu til að leysa raunveruleg verkefni af ýmsum toga. Með því að glíma við raunhæf verkefni og finna lausnir við vandamálum hljóta nemendur góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu.
Verkfræði er í heildina fimm ára nám. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.
Hvernig læri ég?
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Meistaraverkefni
Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 30 einingar og er unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.
Starfsnám
Markmið með starfsnámi er að auka þekkingu nemenda á því sviði sem þeir stunda nám á og búa þá undir störf að námi loknu. Verkfræðideild gengur úr skugga um að nemendur sem fara í starfsnám vinni verkefni sem eru krefjandi, áhugaverð og á þeirra áhugasviði. Starfsnámið hefur mælst mjög vel fyrir hjá nemendum og mörg meistaraverkefni hafa orðið til út frá verkefnum í starfsnámi.
Meistaranemar geta sótt um að taka starfsnám á vorönn. Starfsnámið getur verið allt að 12 ECTS.
Skyldunámskeið fyrir alla:
Gagnanám og vitvélar
Eitt skyldunámskeið er fyrir alla meistaranema í verkfræði, sama á hvaða námsleið þeir eru: Gagnanám og vitvélar (e. data mining and machine learning). Þar eru viðfangsefnin meðal annarra tauganet, ákvarðanatré og mynsturgreining.
Það er mat verkfræðideildar HR að kunnátta á þessu sviði sé nauðsynleg fyrir verkfræðinga dagsins í dag og ekki síst verkfræðinga framtíðarinnar.
Aðferðafræði rannsókna
Samfélagið þarfnast fólks sem getur hugsað gagnrýnt, greint flóknar aðstæður og miðlað niðurstöðum sínum á áhrifaríkan hátt. Þetta getur falið í sér mörg verkefni, þar á meðal að leita að og meta gildi vísindarita og annars konar skjala. Aðferðafræði rannsókna undirbýr nemendur fyrir að takast á við upplýsingaöflun, greiningu og skýrslugerð sem krafist er fyrir öll önnur námskeið.
Skiptinám
Að læra við háskóla í öðru landi er ævintýri, getur víkkað sjóndeildarhringinn og jafnvel staðfest fyrir nemendum hverju þeir vilja einbeita sér að í sínu starfi eftir útskrift. Nemendur í MSc námi geta sótt um skiptinám í eina eða tvær annir en alþjóðaskrifstofan veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Aðstoðarkennsla
Aðstoðarkennsla er auglýst sérstaklega og geta nemendur í MSc námi eða á 3. ári í BSc námi sótt um. Ýmist er um að ræða kennslu í dæmatímum ásamt yfirferð dæma, yfirferð heimaverkefna eingöngu eða aðstoð við verklegar æfingar. Nemendur sem hafa sýnt góðan árangur í námi og hafa áhuga á að spreyta sig við aðstoðarkennslu eru hvattir til þess að sækja um. Nánari upplýsingar hjá skrifstofu verkfræðideildar á vfd@ru.is.
Að námi loknu
Hátækni heilbrigðisþjónustunnar er starfsvettvangur margra heilbrigðisverkfræðinga. Í fjölmörgum fyrirtækjum bæði hér á landi og erlendis er þróuð ný tækni og horft til framtíðar. Þróun tækja og tækni byggir iðulega á nýjustu niðurstöðum rannsókna vísindanna úr ýmsum greinum heilbrigðis- og raunvísinda.
Starfsréttindi
Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc nám. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Skipulag náms
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun allt eftir áhugasviði í samráði við deildina. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Námsáætlun er gerð í samvinnu við leiðbeinanda.
Nemendum er gefinn kostur á að afla sér sérhæfingar á áhugasviði sínu með valfögum. Í MSc heilbrigðisverkfræði eru tvö námskeið skilyrt val.
Nemandi skal taka:
- annað hvort Taugavísindi og tækni eða Lífaflfræði II á haustönn
- annað hvort Vefjaverkfræði og lífefnisfræði eða Taugaverkfræði á vorönn
- hin tvö námskeiðin má taka sem frjálst val.
Eftirfarandi er listi yfir önnur ráðlögð valnámskeið. Auk þess geta nemendur tekið valnámskeið í verkfræði eða tengdum greinum, eða úr öðrum deildum, í samráði við leiðbeinanda og að uppfylltum reglum um meistaranám við verkfræðideild HR.
Námskeiðslýsingar eru að finna í kennsluskrá.
Ertu með spurningar um námið?
Aðstaða
Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Meðal tækja í HR sem notuð eru við kennslu í heilbrigðisverkfræði er 256-rása heilariti (EEG), súrefnisupptökutæki, búnaður til þráðlausrar upptöku á vöðvaritum (EMG) og aðstaða til geislamælinga.
Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.
Verkleg kennsla
Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Aðstaða til kennslu og rannsókna í heilbrigðisverkfræði er mjög góð við HR og á þeim stofnunum sem tengjast náminu beint og óbeint. Nemendur hafa aðgang meðal annars eðlisfræðistofu, efnafræðistofu, vélsmiðju, rafeindatæknistofu, rannsóknarstofu í hreyfifræði og ýmsum sérhæfðum tækjum og rannsóknarstofum tengdum heilbrigðisverkfræðinni.
Svefnrannsóknir

Í HR er starfrækt svefnrannsóknarsetur. Þar eru þróaðar nýjar og athyglisverðar leiðir í grunnrannsóknum á svefni. Á grunni þessara rannsókna hefur fyrirtækið verið stofnað en það vinnur að frumrannsóknum fyrir þróun nýrra svefnlyfja.
Rafeindatæknistofa

Í rafeindatæknistofu er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni. Í stofunni er fjölbreytt safn af verklegum tilraunum er tengjast námsefni á þessum sviðum. Stofan býður jafnframt upp á aðsetur fyrir nemendur sem vinna að stærri verkefnum eða lokaverkefnum í grunnnámi eða meistaranámi. Í stofunni er fjöldinn allur af tækjum og mælitækjum, á borð við sveiflusjár, örtölvur, AD-breytur, iðnaðarróbóta o.s.frv. Mikið safn er af íhlutum fyrir rásavinnu og góð aðstaða til að setja saman rásir.
Vélsmiðja

Vel búin vélsmiðja er mikilvægur þáttur í verkfræðinámi því þar er bilið brúað milli þess fræðilega og þess hagnýta. Flestir nemendur sem útskrifast frá HR með verkfræðigráðu hafa kynnst vélsmíði að einhverju marki, til að mynda unnið í rennibekk og fræsivél við að útfæra hugmyndir og hönnun sína. Í stofunni eru í boði inngangsnámskeið í vélsmíði, þar sem farið er yfir öryggismál og nemendum kennd viðeigandi handtök. Nemendur búa að þessari reynslu á seinni stigum náms og hafa aðgang að vélsmiðjunni til að leysa skemmtileg og raunveruleg verkfræðileg viðfangsefni.
Í vélsmiðjunni eru þrír rennibekkir, tvær fræsivélar, CNC rennibekkur og fræsivél, suðutæki, laser-skurðarvél, ásamt öðrum hefðbundnum verkfærum.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Nemendur í heilbrigðisverkfræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans, og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Af hverju meistaranám í verkfræði í HR?
- Góður aðgangur að framúrskarandi kennurum og vísindamönnum
- Virk tengsl við atvinnulífið
- Meistaraverkefni oft unnin í samstarfi við fyrirtæki og jafnvel hægt að fá styrki til að vinna þau.
- Öflugt starfsnám sem getur verið allt að 12 ECTS
- Skiptinám í boði
- Öll kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík