Af hverju skiptir sjálfbærni máli í starfsemi háskóla?
„Sjálfbærni skiptir máli í háskólum því háskólar þurfa að undirbúa heiminn, við þurfum að auka þekkingu, og miðla svo þeirri þekkingu sem mun skipta máli fyrir heiminn. Þannig að ef að háskólar vilja skipta máli í heiminum, háskólar sem geiri, þá þurfum við að tala um sjálfbærni. Sjálfbærni skiptir okkur máli því hún skiptir máli fyrir heiminn.“
Þetta segir Dr. Concepción Galdón Sanz-Pastor sem leiðir sjálfbærnistarf viðskiptaháskóla IE í Madríd. Hún hélt yfirgripsmikið og afar fræðandi erindi um sjálfbærni í háskólum og vegferð IE í átt að aukinni sjálfbærni á málþingi sem viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík hélt á dögunum í tilefni af 25 ára afmæli skólans.
Öll innan IE ábyrg fyrir sjálfbærni
IE hefur tekið sjálfbærni föstum tökum. Skólinn hefur meðal annars fengið viðurkenningu sem kolefnishlutlaus háskóli og gert pappír útlægan úr starfsemi sinni. Concepción segir algjört lykilatriði að sjálfbærni sé höfð í huga í öllu starfi háskólans.

„Sjálfbærni þarf að vera rauður þráður í allri starfseminni og við þurfum að horfa á allt sem við gerum í gegnum sjálfbærnina. Það felst í því að horfa á hlutina í stærra samhengi í stað þess að horfa aðeins á þetta smáa sem er beint fyrir framan mig. Þú þarft að skilja hvernig þetta smáa sem þú gerir passar inn í stóra samhengið, og hvernig það passar inn í heiminn í raun, til lengri tíma og hvaða afleiðingar það mun hafa,“ segir Concepción. Öll innan IE séu þannig ábyrg fyrir sjálfbærni skólans.
Ekki vera hrædd við breytingar
Annað lykilatriði í vegferð skólans hafi verið sú staðreynd að stofnandi hans, Diego del Alcázar y Silvela, hafi ætíð verið opinn fyrir breytingum. Það sé því í kjarna IE að vera háskóli sem sé opinn fyrir því að þróast og breytast í takt við samfélagið og tímann.
„Almennt er fólk innan IE ekki hrætt við breytingar og þess vegna leggjum við svona mikla áherslu á frumkvöðla, nýsköpun og slíkt. Þannig að þegar þið hafið þessa ósviknu, vitsmunalegu forvitni og eruð ekki hrædd við breytingar, þá held ég að það komi mjög náttúrulega til ykkar að tileinka ykkur tilgang og aðferðir sjálfbærni. Svo ég held að þetta hafi ekki byrjað með sjálfbærni, heldur því að vera opin fyrir breytingum og að gera hluti sem hafa þýðingu. Og líka að vera ekki hrædd við breytingar til þess að það sem þið gerið skipti áfram máli,“ segir Concepción.

Eins og áður segir hefur IE fengið viðurkenningu fyrir að vera kolefnahlutlaus háskóli. Aðspurð hvað felist í því segir Concepción að skólinn sé kolefnahlutlaus þegar kemur að umfangi 1 og 2. Umfang 1 er bein losun frá starfsemi og umfang 2 er losun vegna orkunotkunar, bæði rafmagns og hita. Umfang 3 er síðan sú losun sem verður hjá þriðja aðila vegna okkar starfsemi (sjá nánar í loftslagsleiðbeiningum Festu – miðstöðvar um sjálfbærni).
Concepción segir að það sé mjög skýrt hvernig háskólar geti orðið kolefnishlutlausir vegna umfangs 1 og 2. Umfang 3 sé eilítið flóknara þar sem ekki séu til dæmis til skýr viðmið fyrir háskóla varðandi það. IE er því meðal annars að vinna að slíkum viðmiðum og leiðbeiningum fyrir háskóla um hvernig þeir geti orðið kolefnishlutlausir að öllu leyti.
///
“Sustainability matters in higher education because in higher education we need to prepare the world, we need to generate and transmit the knowledge that is going to be relevant for the world. So if we want to be relevant for the world, higher education as a sector, me must be talking about sustainability. It matters to us because it matters to the world,” says Concepicón Galdón Sanz-Pastor who leads the sustainability strategy at the IE Business School in Madrid.
She gave a comprehensive and very informative lecture on sustainability in universities and IE’s journey towards increased sustainability at a special seminar organized by the Department of Business Administration at Reykjavík University, to celebrate RU’s 25th anniversary.
Everybody is responsible for sustainability
IE has really focused on sustainability and has, among other things, received recognition as a carbon-neutral university and outlawed paper in its operations. Concepción says that a key factor is to include sustainability in everything that is done at the university.
“It needs to be across the board, sustainability needs to be a way in which we look at what we do. Everything that we do. And it’s a way of raising your view, rather than just looking at the little thing that I have in front of me, being able to understand how this one thing that you do fits in the broader scope of things, and how that fits in the broader world, and in the long term and consequences of what we do.” Everybody at IE is therefore responsible for the university’s sustainability.
Don't be afraid of change
Another major key is the fact that IE’s founder, Diego del Alcázar y Silvela, has always been open to change, so it’s in IE’s core to be a university that embraces change and develops with society and time.
“People in IE are in general not afraid of change and that’s why we are so focused on entrepreneurship, innovation, and those kinds of things. And once you have that genuine intellectual curiosity and lack of fear of change then I think embracing purpose and practices of sustainability comes very naturally to people. So I think it didn’t start with sustainability, it started with embracing change and being open to doing things that are meaningful and not being afraid of changing in order to remain relevant, and to remain meaningful,” says Concepción.
As stated before, IE has received recognition as a carbon-neutral university. Concepción says IE is carbon-neutral when it comes to scopes 1 and 2. Scope 1 covers emissions from sources that an organisation owns or controls directly and scope 2 are emissions that a company causes indirectly and come from where the energy it purchases and uses is produced. Scope 3 encompasses emissions that are not produced by the company itself and are not the result of activities from assets owned or controlled by them, but by those that it’s indirectly responsible for up and down its value chain.
Concepción says that it’s clear cut how universities can become carbon-neutral in scopes 1 and 2. Scope 3 is a bit more complicated as there are no clear instructions or methodology for higher education institutions. IE is therefore putting a lot of thought and work into exactly that so that universities can become completely carbon-neutral.
Dagsetning
Deila