Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
24. apríl 2026

Áhersla lögð á þolendamiðaða nálgun

Málþing var haldið á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjvík þann 20. apríl síðastliðinn. Þar var fjallað um skörun persónuverndarlaga, þagnarskylduákvæða og annarra reglna sem koma í veg fyrir að upplýsingum um þolendur, eða ætlaða þolendur ofbeldis, berist á milli opinberra kerfa.

Á málþingu var áhersla lögð á þolendamiðaða nálgun og leiðir ræddar til þess að auka samstarfs lykilaðila án þess að brjóta gegn persónuvernd einstaklinga.

Fundarstjóri var Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sérfræðingur í Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Erindi fluttu þau, Arndís Soffía Sigurðardóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á Suðurlandi, Rögnvaldur G. Gunnarsson, yfirlögfræðingur Landspítalans, Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður, og Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð.

Erindin gáfu góða mynd af þeirri breidd álitaefna sem miðlun upplýsinga um þolendur ofbeldis skapar og vakin var athygli á verkefnum sem unnið hefur verið að undanfarið sem miða að því að bæta réttarvernd þolenda ofbeldis. Samspil laga um persónuvernd og skyldur heilbrigðisstarfsfólks voru sérstaklega rædd.

Segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur lagadeild HR sem skipulagði málþingið en hún leiðir aukna áherslu deildarinnar á rannsóknir og kennslu á sviði tækniréttar og stafrænna lagalegra álitaefna.

María Rún bætir við að í umræðu hafi komið fram mikilvægi verkefna á borð við Öruggara Suðurland til þess að tryggja að verklag tæki mið af ólíkum hagsmunum, að samstarf ólíkra aðila eins og það fyrirkomulag sem Bjarkarhlíð byggir á væri til fyrirmyndar, og teymisvinna eins og heimilisofbeldisteymi Landsspitalans ,væru öflug tól til að mæta þörfum þolenda ofbeldis.

24. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar