Áhugi nemenda á þjóðarrétti eykst á umbrotatímum
Málfundafélag Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir hádegisfundi nýverið er bar yfirskriftina Umbrotatímar í norðri, alþjóðalög og Ísland. Framsögumenn voru dr. Rachael Lorna Johnstone, dr. Þórdís Ingadóttir og Pawel Bartoszek. Fundarstjóri var Dr. Snjólaug Árnadóttir.
Fyrsti framsögumaður dagsins var dr. Rachael Lorna Johnstone, sérfræðingur í heimskautarétti og prófessor við Háskólan á Akureyri. Hún fjallaði um sögulegt samhengi Grænlands hvað varnarmál og þjóðarrétt varðar.
Að hennar fyrirlestri loknum tók við dr. Þórdís Ingadóttir sem fjallaði um stöðu Íslands í samhengi við breytingar á vettvangi þjóðaréttar. Jafnframt talaði hún um hvernig Ísland hefur tekið afstöðu í þjóðréttarlegu samhengi þegar sjálfstæði annarra þjóða er í húfi.
Að lokum tók við Pawel Bartoszek sem fjallaði um stöðu sína í utanríkismálanefndar og gerði grein fyrir breyttu landslagi á alþjóðasviðinu, og þeim áherslum sem líta bæri til þar að lútandi.
Fundinn sóttu um 35 manns og segir Snæfríður Lillý Árnadóttir, formaður málfundafélags Lögréttu, hafa skapast líflegar umræður í pallborði að fundinum loknum en þar var tekist á um ýmis þjóðaréttarleg og pólitísk álitamál.
Að mínu mati er það helsta sem fundurinn skilaði af sér samtal á milli fólks úr akademíu og stjórnmálum og og almenningi, um þessi mikilvægu álitamál. Þá finnst mér finnst áhugi nemenda almennt (ekki bara laganema) á þjóðarrétti hafa aukist mikið upp á síðkastið. Sá áhugi gæti að hluta til verið tilkominn af þessum nýjum vendingum á réttarsviðinu sem rætt var um á fundinum.
Segir Snæfríður Lillý.
Hlutverk Málfundafélagsins er að stofna til umræðu um lögfræðileg málefni og að þjálfa samnemendur til að efla rökfimi og mælskulist. Félagið stendur fyrir opnum málfundum um lagaleg málefni sem eru ofarlega á baugi hverju sinni
Dagsetning
Deila