Aldís hlaut verðlaun ÖBÍ fyrir framúrskarandi lokaverkefni
Aldís Rún Ingólfsdóttir, sem útskrifaðist með meistarapróf frá lagadeild Háskólans í Reykjavík í sumar, hlaut verðlaun Öryrkjabandalags Íslands fyrir framúrskarandi lokaverkefni til meistaragráðu 2026 í Mannréttindahúsinu. Verðlaunaafhending fór fram fimmtudaginn 12. nóvember sl. og var það Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem afhenti verðlaunin.
Ritgerð Aldísar ber heitið: „Hvað ef við hlustuðum?” Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum. Leiðbeinandi Aldísar var dr. Svala Ísfeld Ólafdóttir, dósent við lagadeild HR, sem segir að í ritgerðinni fjalli Aldís um sérlega þýðingarmikið réttarsvið, kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum, sem jafnframt sé afar viðkvæm umræða.
Aldís segir að þrátt fyrir að eitt og eitt mál af þessu tagi fari í gegnum réttarvörslukerfið sé staðreyndin sú að fatlaðar konur sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi njóta ekki þeirrar verndar sem þær eiga rétt á. „Og komi mál þeirra inn á borð yfirvalda er afgreiðsla þeirra ekki með þeim hætti að tryggt sé að þau séu meðhöndluð á tilhlýðilegan hátt eða að þolendum sé sýndur sá skilningur, nærgætni og virðing sem þeir eiga rétt á. Í stuttu máli er niðurstaðan sú að fatlaðar konur eiga undir högg að sækja og eru að verulegu leyti ósýnilegar í íslensku réttarkerfi,” segir Aldís.

Tímabært og mikilvægt framlag
Í umsögn dómnefndar kemur fram að ritgerðin sé tímabært og mikilvægt framlag til umræðu um mannréttindi, réttlæti og samfélagslega ábyrgð hér á landi auk þess sem niðurstöðurnar hafi hagnýtt gildi. Þær gefi stjórnvöldum, réttarvörslukerfinu og þjónustuaðilum mikilvægar vísbendingar um hvar úrbóta sé þörf og leggi áherslu á nauðsyn þess að taka betur mið af reynslu og aðstæðum fatlaðra kvenna við mótun laga og stefna.
Þetta er í annað sinn sem þessi verðlaun eru veitt, en þau voru sett á fót í tilefni 20 ára afmælis námsbrautar í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Annars vegar eru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni til meistaragráðu og hins vegar fyrir framúrskarandi lokaverkefni til doktorsgráðu. ÖBÍ réttindasamtök leita til háskóla landsins eftir tilnefningum.
Þess má geta að í ágúst sl. hlaut Aldís viðurkenningu lagadeildar HR fyrir sömu ritgerð sem framúrskarandi meistararitgerð á sviði mannréttinda og hlaut að launum starfsþjálfun við Mannréttindadómstól Evrópu undir leiðsögn Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstólinn og fyrrverandi prófessors við lagadeild HR.
Dagsetning
Deila