Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
24. ágúst 2026

Aldís verðlaunuð með starfsþjálfun við Mannréttindadómstól Evrópu

Aldísi R. Ingólfsdóttur, nýútskrifuðum lögfræðingi frá lagadeild HR, býðst starfsþjálfun við Mannréttindadómstól Evrópu (MDE) sem viðurkenning fyrir framúrskarandi meistararitgerð sína um Mannréttindasáttmála Evrópu.

Aldís hlýtur viðurkenninguna fyrir ritgerðina Hvað ef við hlustuðum? Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum. Kristín Hekla Örvarsdóttir frá Lagadeild HÍ hlýtur viðurkenninguna fyrir ritgerðina Réttlát málsmeðferð í einkamálum: Samspil krafna 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og meginreglna íslensk einkamálaréttarfars.

Lagadeildir HR og HÍ gerðu samning við MDE um starfsþjálfun að frumkvæði Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstólinn og fyrrverandi prófessors við deildirnar.

Árlega býðst einum brautskráðum kandídat frá hvorri deild starfsþjálfun og voru þessar viðurkenningar afhentar í fyrsta sinn árið 2025.

Dr. Gunnar Þór Pétursson deildarforseti lagadeildar HR, Aldís R. Ingólfsdóttir nýútskrifaður lögfræðingur frá HR, dr. Oddný Mjöll Arnardóttir dómari við MDE og dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent við lagadeild HR.

Fimmtudaginn 20. ágúst kynnti Oddný Mjöll starfsþjálfunina innan veggja HR. Við sama tilefni fjölluðu Aldís og Kristín Hekla um efni ritgerða sinna og tóku við viðurkenningum.

„Þetta er alveg einstakt tækifæri sem ég hlakka til að takast á við, en ég er auðvitað nett stressuð líka!“ segir Aldís um starfsþjálfunina hjá MDE.

Telur brýna þörf á breytingum

Um ritgerð sína Hvað ef við hlustuðum? Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum segir Aldís: „Ritgerðin fjallar um þá fjölþættu mismunun sem fatlaðar konur verða fyrir vegna fötlunar og kyns og þá staðreynd að þær eru tvisvar til fimm sinnum líklegri en ófatlaðar konur til að verða fyrir kynbundnu ofbeldi.

Þrátt fyrir það skila mál þeirra sér sjaldan inn í íslenskt réttarvörslukerfi. Titill ritgerðarinnar, „Hvað ef við hlustuðum?“, vísar til þessa ósýnileika og þess að reynsla fatlaðra kvenna verði að fá vægi í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.“

„Í ritgerðinni fjalla ég meðal annars um tilhneigingu dómstóla til að heimfæra nauðgunarbrot gegn fötluðum konum undir 2. mgr. 194. gr. hegningarlaga, þar sem áhersla er lögð á meinta vangetu þeirra til samþykkis fremur en hvort samþykki hafi í raun legið fyrir.

Slík nálgun getur grafið undan trúverðugleika, kynfrelsi og sjálfsákvörðunarrétti fatlaðra kvenna og ýtt undir barngerð og forsjárhyggju, í andstöðu við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Niðurstaða mín er að Ísland uppfylli ekki að fullu skuldbindingar sínar samkvæmt þeim samningi og Istanbúl-samningnum og að brýn þörf sé á breytingum í réttarvörslukerfinu,“ segir Aldís að lokum.

24. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar