Allir nýnemar fá aðgang að mentor
Síðastliðið haust var hrundið af stað nýrri þjónustu sem felur í sér að allar deildir Háskólans í Reykjavík eru með eldri nemendur í hlutverki mentora fyrir nýnemahópinn fyrstu átta vikurnar á önninni.
„Þetta er verkefni sem við byrjuðum á síðasta haust. Þetta er hugsað sem aukin þjónusta fyrir nýja nemendur skólans. Mentorar gegna því hlutverki að hjálpa nýnemum að aðlagast því að vera í háskóla,“ segir Jóhanna María Vignir, náms- og starfsráðgjafi í HR, sem heldur utan um verkefnið.
„Mentoraverkefnið snýst um að hjálpa nemendum að kynnast umhverfinu, læra inn á það sem skiptir mestu máli og fá að vita hvert þeir eiga að leita ef upp koma vandamál eða spurningar,“ segir Jóhanna María.

Þjónustan færð nær nemendum
„Það er mikið magn af upplýsingum sem kemur fram á nýnemadögunum og skiljanlega fer margt inn um annað eyrað og út um hitt. Þetta snýst aðallega um að nýnemarnir viti að þeir geti leitað til mentoranna til að fá þessar upplýsingar.
Þetta er partur af þeirri þjónustu sem við viljum veita, af því við vitum að þegar þú ert nýr nemandi í einhverju risastóru háskólabatteríi þá getur verið flókið að vita hvert þú átt að leita.
Kannski finnst þér vandamálin þín ekki nógu stór til þess að bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjafa eða senda tölvupóst á kennara. Við vildum brúa þetta bil og færa þjónustuna nær nemendum og vonandi auðvelda þeim þannig að taka skrefið til að fá þá aðstoð sem þarf,“ segir Jóhanna María.
Tveir til átta mentorar við hverja deild
Nokkrir mentorar eru við hverja deild og sjá nemendafélög deildanna, í samvinnu við nemendaþjónustu HR, um að finna sjálfboðaliða úr hópi eldri nemenda sem taka hlutverkið að sér.
„Þetta er eitt af því sem er hugsað til þess að hjálpa nýnemum að verða HR-ingar sem fyrst. Að stytta aðlögunartímann, gera hann þægilegri og hjálpa þeim að komast inn í háskólasamfélagið okkar.“

„Það eru allt frá því að vera tveir upp í átta mentorar við hverja deild. Það er svolítið í höndum nemendafélaganna að velja hversu marga mentora þau telja sig þurfa og hversu marga mentora þau fá.
Ég er mentorunum til halds og trausts ef þau eru með einhverjar spurningar eða ef eitthvað kemur upp á. Mentorarnir eiga að vera sýnilegir nýnemahópnum, vera í samskiptum við nýnemahópinn, koma sér á framfæri og halda viðburði. Þetta eru kannski tveir hittingar,“ segir Jóhanna María og nefnir dæmi:
„Einhverjum gæti þótt erfitt að mæta einir í nýnemapartý eða á einhvern viðburð. Þá geta þeir mælt sér mót við mentor rétt á undan og mætt með minni hóp, í stað þess að mæta ekki. Þetta er eitt af því sem er hugsað til þess að hjálpa nýnemum að verða HR-ingar sem fyrst. Að stytta aðlögunartímann, gera hann þægilegri og hjálpa þeim að komast inn í háskólasamfélagið okkar.
Eftir að mentorarnir hafa séð um þessi ákveðnu verkefni í átta vikur fá þeir umbun fyrir. Ábyrgðin og verkefnin þeirra eiga ekki að vera lýjandi og þeir sem voru mentorar í fyrra voru mjög spenntir fyrir verkefninu og telja þetta vera nýnemum til mikilla hagsbóta,“ segir Jóhanna María að lokum.
Dagsetning
Deila