Alþjóðlegt málþing um neytenda- og markaðshegðun
Rannsóknarhópurinn Consumer Behaviour Analysis Research Group, sem var stofnaður af Gordon Foxall rannsóknarprófessor, stóð í síðustu viku fyrir alþjóðlegu málþingi í Háskólanum í Reykjavík í tengslum við undirbúning nýrrar fræðibókar, Innovations in Consumer and Market Behaviour Analysis: Building Evidence-Driven Market Strategy for the Digital Era. Ritstjórar bókarinnar eru Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR, og Asle Fagerstrøm, sem starfar við Kristiania háskóla og Háskólann í Osló.

Á málþinginu komu saman prófessorar og vísindamenn alls staðar að úr heiminum til að kynna og ræða rannsóknir sínar sem fyrirhugað er að birta í bókinni sem gefin verður út á næsta ári af Palgrave MacMillan. Markmiðið með málþinginu var að efla alþjóðlegt rannsóknarsamstarf, skapa vettvang fyrir fræðilega umræðu og þróa nýja þekkingu á neytenda- og markaðshegðun í síbreytilegu stafrænu umhverfi.
Málþingið skapaði þannig mikilvægan vettvang fyrir alþjóðleg þekkingarskipti og nýjar nálganir við að skilja, skýra og hafa áhrif á neytendahegðun á stafrænum mörkuðum samtímans.

Með tilkomu bókarinnar verða fræðilegar kenningar, rannsóknir byggðar á gögnum og raunhæfar tilviksrannsóknir sameinaðar. Sérstök áhersla verður lögð á aðferðafræði atferlisgreiningar og að greina þá þætti og aðstæður sem móta hegðun neytenda og hvernig nýta megi rannsóknarniðurstöður til að þróa gagnreynda markaðsstefnu.
Dagsetning
Deila