Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
20. júní 2025

Ársskýrsla HR 2024 komin út

Út er komin ársskýrsla HR fyrir árið 2024. Skýrslan er aðgengileg á íslensku hér á vefnum og á ensku hér. Þá er sú nýbreytni í ár að hún er einnig gefin út á prenti á báðum tungumálum.

Í ársskýrslunni má kynna sér nýja stefnu HR sem samþykkt var árið 2024 og nær til ársins 2030, það er fjallað um nýjunar í námi og kennslu við HR og það helsta sem verið er að gera í rannsóknum í öllum deildum skólans.

Þá eru lykiltölur ársins 2024 raktar, farið yfir sögu ársins og fjallað um nýsköpun, sterk tengsl HR við atvinnulífið og samstarfið við NeurotechEU. Að auki er ársskýrslan ríkulega skreytt ljósmyndum og gefur hún góða innsýn inn í það öfluga og fjölbreytta starf sem fram fer í Háskólanum í Reykjavík.

20. júní 2025
Nýjustu fréttirnar