Námið
Rannsóknir
HR
2. febrúar 2026

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík í Hörpu

Háskólinn í Reykjavík brautskráði 267 nemendur við fjölmenna athöfn í Eldborg í Hörpu laugardaginn 31. janúar sl. Af tæknisviði brautskráðust 201 nemendur og 66 nemendur af samfélagssviði, þar af þrír með doktorsgráðu í verkfræði.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp og lagði meðal annars áherslu á stöðu alþjóðamála og að þrátt fyrir óvissu og hraðar tæknibreytingar þá væri mikilvægt að hafa trú á því að framtíðin væri björt enda mikilvægur þáttur í því að lifa hamingjusamlega:

„En ef við hugsum kalt til baka sjáum við að fólk hefur alltaf talið að það búi á algerlega óvenjulega erfiðum tímum! Fyrir 40 árum lásu börn í símaskránni um hvernig skyldi hegða sér ef kæmi til kjarnorkuárásar og geislunar – en til þess kom ekki. Þá var líka fátækt meiri, atvinnulíf einhæfara og menntunarstig lægra, bæði hér á landi og á alþjóðavísu. En í dag hafa lífskjör batnað, atvinnulíf orðið fjölbreyttara, réttindi eru betur varin, kynjajafnrétti hefur aukist og fram á allra síðustu ár, lýðræði fest sig í sessi á heimsvísu – og allt þetta er vegna þrotlausrar baráttu fólks, sem vissi ekki endilega af styrkleikum sínum fyrr en á reyndi. En framlagið þeirra skipti máli og breytti og bætti samfélagið okkar á ótal vegu.“

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.

Þá nefndi hún mikilvægi lýðræðis og hvernig það snertir háskólasamfélögin:

„Og við í íslensku háskólunum getum verið stolt af því að halda – í örsmáu samfélagi (og málsamfélagi) – úti rannsóknum sem styðja þetta samfélag og miðla þekkingu á okkar tungumáli. Og í HR erum við sérstaklega stolt af því að stunda rannsóknir á heimsmælikvarða, sem hafa áhrif í nærumhverfinu; að miðla til Íslands þekkingu erlendis frá; kenna og efla nýsköpun á öllum sviðum og gera þetta allt í náinni samvinnu við atvinnulífið, hlusta og bregðast við þeim sjónarmiðum sem þaðan koma um leið og við sinnum því hlutverki  okkar að undirbúa samtalið fyrir framtíðina.“

Sara Arndís Thorarensen, útskriftarnemi með BSc í orku- og véltæknifræði.

Sara Arndís Thorarensen, útskriftarnemi með BSc í orku- og véltæknifræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, stýrði athöfn og um tónlistarflutning sáu Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar.

Sara Arndís minntist á það í ræðu sinni að útskriftardagurinn marki kaflaskil þar sem útskriftarnemar geti litið til baka á síðustu ár og ákveðið hvað þau vilji helst taka með sér og nýta í framtíðinnni. Næsti kafli sé ólíkur þeim sem þau loki við útskrift en þau hafi öðlast verkfæri til að takast á við hann.

2. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar