Brynja Björk ráðin deildarforseti sálfræðideildar HR
Dr. Brynja Björk Magnúsdóttir hefur verið ráðin deildarforseti sálfræðideildar Háskólans í Reykjavík frá og með 1. janúar 2027. Brynja Björk er dósent og forstöðukona sérnáms í klínískri taugasálfræði í HR. Hún tekur við starfi deildarforseta af dr. Kamillu Rún Jóhannsdóttur, sem hefur sinnt starfinu frá því í nóvember 2021.
Brynja Björk lauk doktorsprófi í taugasálfræði frá King’s College London 2008, cand.psych.-prófi í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands 2009 og BA-prófi í sálfræði frá sama skóla 2002. Hún hefur verið fastráðin við HR frá 2014 og dósent við sálfræðideild frá 2019. Brynja Björk stýrði grunnnámi í sálfræði á árunum 2020–2024 og gegndi starfi deildarforseta í afleysingum á haustönn 2024.
Brynja Björk hefur tekið virkan þátt í stefnumótun sálfræðideildarinnar og þróun náms við deildina. Hún hefur meðal annars stýrt uppbyggingu tveggja nýrra námsleiða, sérnáms í klínískri taugasálfræði og náms á meistarastigi í velsældarfræðum. Samhliða starfi sínu við HR hefur Brynja Börk starfað á Landspítala, þar sem hún er sérfræðingur í klínískri taugasálfræði og sinnir meðal annars þjálfun og handleiðslu klínískra taugasálfræðinga.
Rannsóknir Brynju Bjarkar eru einkum á sviði klínískrar taugasálfræði og hafa meðal annars beinst að hugrænni færni fólks með alvarlegar geðraskanir, hugrænni endurhæfingu, öldrun og kulnun. Hún hefur einnig tekið þátt í umfangsmiklum rannsóknum á tengslum erfðabreytileika og geðraskana.
Kamillu Rún þakkað fyrir frábært samstarf
Í matsnefnd voru þau dr. Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, dr. Þórhildur Halldórsdóttir dósent við sálfræðideild og Pétur Maack Þorsteinsson, formaður sálfræðingafélags Íslands: „Ég vil þakka öllum sem komu að þessu mats- og ráðningarferli kærlega fyrir þeirra góða framlag. Þá vil ég þakka Kamillu Rún núverandi deildarforseta fyrir mikilvægt og gott framlag til deildarinnar og fyrir frábært samstarf á undanförnum árum. Hún mun sinna deildarforsetastarfinu í haust eða þangað til Brynja tekur við í upphafi nýs árs,“ segir dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs og aðstoðarrektor HR.

Dagsetning
Deila