Careflux hlýtur Gervigreindarverðlaun Íslands og viðurkenningu á Degi lækna
Fyrirtækið Careflux, sem á rætur sínar að rekja til Háskólans í Reykjavík, hlaut nýlega Gervigreindarverðlaun Íslands í flokknum „atvinnulíf“ — viðurkenningu sem undirstrikar mikilvægi íslenskrar nýsköpunar á sviði gervigreindar í heilbrigðisþjónustu og víðar. Einnig hlaut fyrirtækið viðurkenningu fyrir nýsköpun á Degi lækna sem haldinn var af Læknafélagi Íslands.

Careflux var stofnað í ársbyrjun 2024 af þeim Steindóri Ellertssyni, sérnámslækni í heimilislækningum og doktor í læknavísindum, sem nú gegnir starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, ásamt Stefáni Ólafssyni, lektor, og Hrafni Loftssyni, dósent, báðum við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Uppruni hugmyndarinnar
Hugmyndin að Careflux kviknaði í heilbrigðiskerfinu sjálfu. Steindór, sem starfandi læknir, upplifði á eigin skinni hvernig pappírsvinna og skráningar í kerfi tóku yfir sífellt stærri hlut af vinnudeginum á kostnað tímans með sjúklingum. Þessi reynsla varð kveikjan að lausnum sem miða að því að láta kerfin vinna með starfsfólkinu, en ekki gegn því.
Skríban og Merkúr
Innan Careflux er nú unnið að þróun tveggja gervigreindarkerfa, Skríban og Merkúr, sem hönnuð eru með það að markmiði að skapa verulega hagræðingu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Kerfin skilja íslensku, ensku og fleiri tungumál, greina samhengi verkefna og bjóða upp á sjálfvirkar svartillögur, verkefnalista og samantektir svo starfsfólk geti einbeitt sér að því sem mestu máli skiptir.
Þótt Careflux hafi hafið göngu sína í heilbrigðiskerfinu varð það fljótt ljóst að pappírsvinna og þreytandi kerfisbundnar kröfur eru vandinn í flestum atvinnugreinum og að lausnirnar geta nýst vítt og breitt.
Tengsl við Háskólann í Reykjavík
Careflux er skýrt dæmi um hvernig fræðilegt starf og hagnýt nýsköpun geta farið saman. Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur lengi verið í fararbroddi í rannsóknum á máltækni og gervigreind og stofnun Careflux endurspeglar þá menningu sem ríkir við háskólann — þar sem hugmyndir verða að hagnýtanlegum lausnum.
Viðurkenningarnar eru vel til þess fallnar að vekja enn frekari athygli á störfum fyrirtækisins og styrkja tengsl þess við íslenskt atvinnulíf.
Dagsetning
Deila