Doktorsnet NeurotechEU leiðir saman doktorsnema víðs vegar að úr Evrópu
Opið er fyrir umsóknir í doktorsnet NeurotechEU er tengir saman doktorsnema sem hafa áhuga á þverfaglegum rannsóknum á sviði taugavísinda og/eða tækni eða skyldum sviðum sem heyra undir NeurotechEU.
Með því að tengja saman doktorsnema frá mörgum háskólum og fræðasviðum er doktorsneti NeurotechEU ætlað að efla langtíma samstarf.Það tengir saman doktorsnema í taugavísindum og tækni um alla Evrópu og veitir þeim tækifæri til alþjóðlegs samstarfs, starfsþróunar og tengslamyndunar samhliða núverandi doktorsnámi. Þátttakendur taka þátt í stafrænum viðburðum og námskeiðum og ásamt að minnsta kosti einum árlegum staðarfundi.

„Mér finnst helsti kosturinn við doktorsnet NeurotechEU vera sá að það mun verða til þess að leiða saman doktorsnema víðs vegar að úr Evrópu og úr ólíkum fræðigreinum. Auk þess verður lögð áhersla á að skapa tengslanet á milli doktorsnemana og veita þeim einstakt tækifæri til samstarfs sem ekki býðst alla jafna í doktorsnámi,“ segir Lisa Maria Wu, prófessor við sálfræðideild.
Þátttaka er opin doktorsnemum við háskóla innan NeurotechEU háskólanetsins og eru doktorsnemar sem stunda doktorsnám við HR hvattir til að sækja um.
Fyrir upplýsingar um valferlið, vinsamlegast hafið samband við Luka Biedebach eða Lisa Maria Wu.
Doktorsnemar, skráðir í nám til prófgráðu við HR, geta sótt um hér.
Dagsetning
Deila