Dr. Anna Sigríður Islind hlýtur framgang í stöðu prófessors
Dr. Anna Sigríður Islind hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Anna Sigríður hefur sinnt ötulu starfi við deildina og komið að ýmsum stefnumótandi verkefnum við deildina. Hún hefur kennt nemendum í grunn- og meistaranámi og verið leiðbeinandi í lokaverkefnum. Þá hefur hún leiðbeint 8 doktorsnemum frá upphafi doktorsnáms til doktorsgráðu.
Dr. Anna Sigríður er áhrifamikil vísindakona sem birt hefur alls 109 ritrýndar greinar þar af 55 tímaritsgreinar, 47 ráðstefnugreinar og 7 bókakafla. Alls hafa þær rannsóknir sem hún hefur stjórnað, eða komið að, tryggt Háskólanum í Reykjavík samtals ríflega 3 milljarða króna í rannsóknarstyrkjum. Þá hefur samstarf hennar við heilbrigðisgeirann haft áhrif jafnt innan sem utan HR, nú síðast með nýju sérnámi fyrir heilbrigðisstarfsfólk á Landsspítalanum þar sem gervigreind og heilbrigðisvísindi mætast.
Nefndina skipuðu Björn Þór Jónsson, Åsa Cajander frá Uppsala háskóla, og Richard Baskerville frá Georgia State háskóla. Í vitnisburði þeira sagði m.a. að Anna Sigríður hefði verið leiðandi í starfi sínu við deildina allt frá því að hún hóf þar störf árið 2018. Ferill hennar sýndi mikla skuldbindingu við nemendur og í rannsóknum og rannsóknarefni hennar væru frumleg og í takt við samtímann.
Dagsetning
Deila