Dr. Haraldur Auðunsson hlýtur framgang í stöðu prófessors við verkfræðideild
Dr. Haraldur Auðunsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við verkfræðideild. Haraldur hefur um árabil lagt fram mikilvægt framlag til Háskólans í Reykjavík, einkum á sviði framúrskarandi kennslu, forystu í kennslumálum og akademískrar þjónustu. Hann hefur haft ríkuleg áhrif á starfsemi innan verkfræðideildar og á fræðilega framþróun innan Háskólans í Reykjavík í heild sinni.
Haraldur hefur gegnt lykilhlutverki í stofnun og uppbyggingu á námi í heilbrigðisverkfræði við HR. Þá hefur hann gengt leiðtogahlutverki en hann var sviðsstjóri á árunum 2005–2019. Undir hans leiðsögn þróaðist námið í eitt það öflugasta og sýnilegasta innan deildarinnar, til hagsbóta bæði fyrir háskólann svo og íslenskt fræðasamfélag og atvinnulíf.
Rannsóknir Haraldar í jarðeðlisfræði eru um segulsvið jarðar, hegðun þess síðustu milljónir ára og sérstaklega meðan sviðið er að umpólast eða sýnir óvanalega frávik. Einnig skoðar hann hvernig mældur styrkur segulsviðs yfir jarðhitasvæðum hér á Íslandi nýtist við að afmarka stærð þeirra og eðli. Þá hefur hann m.a. tekið þátt í nokkrum stórum, alþjóðlegum verkefnum sem fjalla um kennslu, nám og menntun á háskólastigin þar sem oftar en ekki er lögð áhersla á óvænta atburði og áskoranir sem bíða okkar í framtíðinni.
Nefndina skipuðu, Paolo Gargiulo, prófessor við verkfræðideild, Lotta María Ellingsen, prófessor við Háskóla Íslands og Matt Murphy, prófessor við University of Liverpool. Í vitnisburði þeira sagði m.a. að Haraldur hafi sýnt forystu í kennsluþróun og starfaði af heilindum við háskólann um árabil.
Dagsetning
Deila